09.08.26 - 21:09
Helgi Inguson
Önnur lið sýndu Hrannari Snæ áhuga - „Það er alltaf markmiðið að komast lengra"
Auglýsing

„Ég er bara í flottu leikformi og líkaminn í mjög góðu standi

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar Snær Magnússon gekk til liðs við Víking á dögunum eftir rúmlega hálfs árs dvöl í Noregi þar sem hann lék með Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni.
Hrannar spilaði sínar fyrstu mínútur með Víkingi í kvöld þegar hann spilaði 20 mínútur í jafntefli liðisins gegn ÍBV. Hrannar ræddi við Fótbolta.net að leik loknum.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍBV
„Víkingur hefur sýnt mér áhuga áður í vetur. Svo var bara verið að skoða málin þarna úti og þetta gerðist tiltölulega hratt núna í glugganum," sagði Hrannar. En það leið rúm vika frá því að Víkingur byrjaði að sínu mikinn áhuga og hann var mættur í Víkina.
Voru önnur lið sem sýndu þér áhuga?
„Það var verið að sýna mér áhuga. Ég veit ekki allt með það en já það var sýndur meiri áhugi."
Hrannar kom við sögu í níu leikjum í Noregi. Tíminn þar var lærdómsríkur þó hann hefði viljað spila meira.
„Þetta var flottur tími í Noregi og ég lærði mikið. En maður var kannski ekki búinn að fá jafn mörg tækifæri og maður vildi."
Hrannar er spenntur fyrir komandi tímum með Víkingi. „Þetta er gífurlega spennandi leikmannahópur, umgjörð og þjálfarateymi. Það er allt spennandi hérna. Markmiðið er að koma mér eins hratt og ég get í hlutina og sýna hvað ég get."
Er markmiðið að fara aftur út?
„Það er alltaf markmiðið að komast lengra," sagði Hrannar að lokum.