09.08.26 - 22:00
Helgi Inguson
Linta eftir jafntefli gegn Víkingi: Ég var ánægðari með tapleikina en þennan
Auglýsing

„Strákarnir áttu þetta skilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Strákarnir áttu þetta skilið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er góð niðurstaða," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir jafntefli liðsins gegn toppliði Víkings á Víkingsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 ÍBV
„Víkingur er líklega besta liðið á landinu. Að ná í stig á þeirra heimavelli er alltaf góður hlutur. En ef við horfum á leikinn þá finnst mér að við hefðum getað verið betri á köflum. En Víkingur er gott lið og við getum ekki stjórnað hverri stöðu eða augnabliki gegn þeim," sagði Linta um leikinn.
„Að mínu mati var þetta sanngjörn niðurstaða. Varnarlega börðumst við og vorum þéttir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Víkingur fékk tækifæri en þeir eru einfaldlega gott lið sem er vel þjálfað. Við fengum þó líka þrjú góð færi og úrslitin sanngjörn."
ÍBV hafði tapað þremur og gert eitt jafntefli í síðustu fjórum leikjum fyrir leikinn í kvöld.
„Það var mikilvægt að ná í góð úrslit, að ná stigi. Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég mjög sáttur með spilamennskuna í leikjunum sem við töpuðum. Ég var ánægðari með þá leiki en þennan. En svona er fótbolti. Stundum þarf maður að vera þolinmóður og þér er verðlaunað. Ég held að þetta séu verðlaunin fyrir tapleikina þar sem við spiluðum vel og áttum meira skilið," sagði Linta að lokum.