Fotbolti.net
09.08.26 - 22:13
Daníel Smári Magnússon

Jökull: Let's fokking go!

Auglýsing
Jökull hefur magnað lundarfar og var í glimrandi skapi eftir dýrmætan sigur á Akureyri

Jökull hefur magnað lundarfar og var í glimrandi skapi eftir dýrmætan sigur á Akureyri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já, vá. Vá, hvað þetta var gaman! Þetta var alvöru liðssigur, við stóðum okkur frábærlega á móti erfiðu KA liði hérna. Alltaf erfitt að fljúga um daginn og mæta og spila á móti erfiðu KA liði. Og bara, guð minn góður hvað þetta var gaman. Stóðum saman allan tímann og svo bara geðveikt hornspyrnumark,'' sagði kampakátur Jökull Andrésson eftir 0-1 sigur FH á KA í fallbaráttuslag í Bestu-deild karla í kvöld. 

Lestu um leikinn: KA 0 - 1 FH

Jökull stóð vaktina virkilega vel í marki FH í dag og varði dauðafæri Jakobs Héðins Róbertssonar á mikilvægum tímapunkti í leiknum.

„Já, maður þarf nú að hjálpa þessum gæjum. Það er bara þannig! Neinei, ég segi svona. Ég hafði ekkert að gera allan leikinn, þannig að ég má nú allavega einu sinni koma og hjálpa þeim. Ég er búinn að segja núna í ég veit ekki hvað mörgum viðtölum í seinustu leikjum, ég er svo stoltur af strákunum mínum og hvað þeir eru búnir að hjálpa mér mikið. Mér finnst við vera komnir með alvöru varnarteymi hérna og ekki bara varnarteymi, það eru bara allir. Það er þegar Kjartan Kári kemur niður, eða Dolli (Adolf Daði), eða Arnór Borg. Þetta er bara alvöru teymi og við ætlum bara að halda því áfram,'' sagði Jökull.

Stigasöfnunin hefur kannski ekki verið uppá marga fiska, en FH-ingar geta sannarlega yljað sér við það að liðið er nú taplaust í 9 deildarleikjum í röð.

„Ég meina, við erum ekki búnir að tapa í 9 leikjum. Það er erfitt að vera í einhverri svaka fýlu útaf því, en auðvitað hefðum við kannski viljað vinna 2-3 fleiri leiki, en fólk er að sjá núna hvað við erum að gera og hvers konar liðsheild við erum með. Og við ætlum bara að sýna það núna restina af tímabilinu að það er ekkert nema upp.''

Verður leyft sér að horfa upp til skýjanna eða verður bara tekið einn leik í einu?

„Já, sorry. Ég ætla ekki að fara að segja neitt núna! Það er bara Víkingur á sunnudaginn, það er bara að "preppa" vel fyrir það og let's fucking go!''

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.