Linta: Getum ekki grátið út af þessu
„Ég er aldrei ánægður þegar ég tapa. Ég er keppnismaður og ég hata að tapa," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 tap gegn Keflavík í Bestu deildinni í kvöld.
„Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleiknum. Ég er ekki að segja að Keflavík hafi verið mjög góður, þetta var frekar jafn leikur. Í seinni hálfleik vorum við mjög góðir, ég var mjög ánægður með það. Við sköpuðum nokkur augnablik þar sem við hefðum getað skorað. Það gerðist ekki, þannig er fótboltinn."