Lárus Orri: Geturðu talið fyrir mig hvað FH er búið að taka?

Lárus Orri var ósáttur eftir leik!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri var ósáttur eftir leik!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við hefðum viljað fá þrjú stig. Mér fannst fyrri hálfleikurinn ekki alveg nógu góður hjá okkur. Við vorum ekkert lakari aðilinn í fyrri hálfleiknum, leikurinn var bara í fínu jafnvægi, boltinn gekk svona fram og til baka og hvorugt liðið náði einhvern veginn tökum á leiknum og við vorum ekki nógu grimmir í návígum og ekki alveg nógu öflugir í pressunni."
„Það sem við erum búnir að vera að gera undanfarna leiki er að við höfum verið 100% í þessum hlutum og stigum aðeins af bensíngjöfinni í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik komum við mjög sterkir inn og áttum allan seinni hálfleikinn þannig að ég held að við höfum átt skilið þrjú stigin en við tökum stiginu."
ÍA náðu ekki miklum tökum á leiknum í fyrri hálfleik en komu mun grimmari til leiks í þeim síðari og sýndu allt annan kraft eftir hlé, tók Lárus góða hálfleiksræðu?
„Nei, nei, við fórum bara yfir vissa hluti sem við vorum ekki ánægðir með eins og til dæmis þetta, menn voru ekki alveg nógu ákveðnir, við stigum ekki alveg nógu hátt á þá. Fórum svona hálfa leið í pressunni, næstum því að klára hana alveg eins og við höfum kannski séð í seinni hálfleik. Þar voru Erik og Baldvin gríðarlega öflugir í seinni hálfleik, þeir voru mjög ákveðnir í pressunni sem gerði gæfumuninn og við náðum að pinna þá alveg inn í seinni hálfleiknum.´´
„Ég er ekki búinn að sjá neina tölfræði en ef þú kíkir á öll tölfræðiatriði leiksins þá er hún sennilega okkar megin en ég meina FH er með öflugt lið, alveg hellingur af flottum fótboltamönnum í FH. Það er oft talað um það að við höfum verið að bæta við okkur. Við tókum Skytturnar þrjár, Bödda, Gísla og Gumma og svo tókum við unga stráka. Við erum búin að taka Rafael, Guðmar og Jón Sölva. Geturðu talið fyrir mig hvað FH er búið að taka?" spurði þjálfarinn
Skagamenn vildu fá vítaspyrnu þegar Erik Tobias Sandberg skallaði boltann í höndina á Baldri Kára og vildu Skagamenn meina að um augljósa vítaspyrnu væri að ræða.
„Já, hann fer náttúrulega bara í hendina á honum. Þetta er náttúrulega bara víti. Þannig að það er svekkjandi, sérstaklega þar sem við erum búnir að fá mörg dæmt víti dæmd gegn okkur eftir hendi, ég held það séu örugglega einhver þrjú í sumar. Þannig að það er svekkjandi að þið missið af þessu." sagði Lárus Orri við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.
