23.08.26 - 20:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óskar Hrafn: Þó Aron gæti verið pabbi Sigga Breka þá eru þetta frábærir leikmenn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR vann KA 5-3 í fjörugum leik á Akureyri í dag. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leikinn.
„Ég er í grunninn mjög sáttur við þennan leik. Mér fannst við stjórna honum frá upphafi til enda, auðvitað fáum við á okkur þrjú mörk sem er óþarfi. Við skorum fimm en hefðum getað skorað tíu. VIð fáum KA lið sem var búið að fá innspýtingu með nýjum þjálfara í vikunni. En mér fannst við mjög flottir langstærstan hluta leiksins." sagði Óskar Hrafn.
„Við nýttum færin okkar betur í fyrri hálfleik en seinni hálfleik. Mér fannst við ekki skapa minna í seinni hálfleik en vissulega voru mörkin fleiri í fyrri. Heilt yfir er alltaf erfitt að koma til Akureyrar að spila og sækja sigurinn og ekki eitthvað sem maður tekur sem sjálfsögðum hlut."
Aron Sigurðarson skoraði þrennu og Sigurður Breki Kárason var með þrjár stoðsendingar.
„Þeir eru frábærir leikmenn báðir tveir þótt Aron gæti verið pabbi Sigga Breka þá eru þetta báðir frábærir leikmenn. Það er gaman að Aron skuli hafa sett þrennu. Siggi Breki er búinn að líða fyrir það að miðjan með Orra, Krumma, Arnór og Aron hefur verið í góðum takti og þá hefur hann ekki fengið þær mínútur sem hann á skilið. Ég hefði viljað að hann myndi spila. Hann var frábær í dag," sagði Óskar Hrafn.