Fotbolti.net
23.08.26 - 19:58
Haraldur Örn Haraldsson

„Vorum búnir að fá svona 10 hornspyrnur fyrsta korterið"

Auglýsing
„Vorum búnir að fá svona 10 hornspyrnur fyrsta korterið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var góð orka í liðinu, það sem við vildum sjá. Fá inn gleði og orku, þá myndu gæðin skína í gegn sem þau gerðu," sagði Hákon Ernir Haraldsson einn af þjálfurum Stjörnunnar eftir 4-2 sigur gegn Þór í dag.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 2 Þór

Stjörnumenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru í raun óheppnir að skora ekki fleiri mörk á fyrstu mínútunum.

„Við vorum búnir að fá svona 10 hornspyrnur fyrsta korterið, við bara hömruðum á þeim og gerðu virkilega vel. Við hefðum getað nýtt færin betur, en svo nýttum við nokkar skyndisóknir og vorum komnir í góða stöðu í hálfleik," sagði Hákon.

Hákon er einn af þremur þjálfurum sem leiðir liðið en hinir eru Olgeir Sigurgeirsson og Brynjar Kristmundsson.

„Við vinnum hvorn annan bara vel upp, Olgeir er í forsvari fyrir leikmenn. Hann er auðvitað stærsta nafnið og kannski auðveldast að menn hafi einhverja virðingu fyrir honum. Ég hef auðvitað verið lengst, þannig að ég þekki leikmenn vel. Brynjar er svo bara frábær æfingar þjálfari, er mikið með æfingar. Hann er auðvitað að gera vel með KFG líka. Þannig að við vinnum hvorn annan vel upp held ég," sagði Hákon.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.