Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér
„Ég er ótrúlega spennt að við séum loksins komin í þetta verkefni, að ná í þennan HM draum sem við höfum talað um," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru tveir leikir gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM. Fyrri leikurinn fer fram í Pula í Króatíu á morgun.