08.10.26 - 15:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frá árs fjarveru í íslenska landsliðið - „Tíminn líður ekkert eðlilega hægt“
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Emelía Óskarsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Emelía á landsliðsæfingu.

Mynd: KSÍ

Emelía er leikmaður HB Köge í Danmörku.

Mynd: HB Köge

Fór á láni til FC Kaupmannahafnar eftir meiðslin.

Mynd: FCK

„Tilfinningin er mjög góð. Þetta er búið að vera draumur mjög lengi og að þetta sé búið að gerast er bara æðislegt," segir Emelía Óskarsdóttir við Fótbolta.net en hún er komin í A-landsliðshópinn í fyrsta sinn.
Emelía er í hópnum sem mætir Króatíu í tveggja leikja einvígi í umspili fyrir HM. Fyrri leikurinn í einvíginu fer fram í Króatíu á morgun.

TENGT EFNI
Steini um Emelíu: Komin með kraftinn aftur
Hvernig fréttirðu að þú yrðir í þessum hóp?
„Það er smá fyndin saga. Þorsteinn hringdi í mig en ég var greinilega ekkert að svara símanum því ég var að fljúga til London. Hann spurði mig hvort ég væri búin að skipta um símanúmer. Svo náði hann í mig þegar ég var í rútu á leið upp á hótel og hann sagði mér að ég væri í hópnum."
„Ég var ekkert rosalega mikið að búast við þessu þannig að þetta var mjög gott. Þetta er mjög sterkur hópur en það voru einhver meiðsli og svona."
„Þetta hefur verið draumur frá því ég man eftir mér."
Ekki auðveld leið
Emelía, sem er uppalin hjá Gróttu, er leikmaður HB Köge sem er besta liðið í Danmörku. Hvernig er lífið þar?
„Heyrðu, það er bara frábært. Þetta er mjög næs. Þetta er orðið mitt annað heimili og mér líður mjög vel utan vallar. Ég er búin að læra tungumálið sem gerir allt léttara. Ég hef verið þarna í þrjú ár og mér líður mjög vel þarna."
Leið Emelíu að fyrsta landsliðskallinu hefur ekki verið auðveld. Hún sleit krossband í hné á æfingu með HB Köge árið 2024 og var frá keppni í rúmt ár en hefur nú unnið sig aftur inn í gott hlutverk. Hún var valin efnilegasti leikmaður HB Køge árið 2025, lék með FC Kaupmannahöfn að láni síðastliðið vor og er nú komin aftur til danska meistaraliðsins.
„Þetta var mjög krefjandi. Maður veit fyrirfram að þetta er ár og tíminn líður ekkert eðlilega hægt. Þetta var ógeðslega erfitt. Ég var ein úti og fór ekkert mikið til Íslands. Ég nýtti þennan tíma til að ferðast svolítið, til að lifa aðeins eins og maður getur ekki á miðju tímabili."
„Ég veit ekki hversu oft í viku ég var í styrktaræfingum. Þá kemur maður vel til baka. Það voru allir að segja að ég myndi koma sterkari til baka en ég var ekki endilega að trúa því. Svo finnst mér það bara rétt. Ég held að þetta hafi gert mér gott þó það hljómi kannski smá rangt," sagði Emelía og brosti.
Hlutirnir hafa gerst hratt eftir að hún kom til baka úr meiðslum.
„Maður aldrei við hverju maður á að búast. Þetta er bara geggjað. Það er geggjað að spila í flottri deild og í Meistaradeildinni. Þetta er bara draumurinn," sagði Emelía.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.