Fotbolti.net
06.10.26 - 22:56
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Orri Steinn: Við gerðum ekki nóg

Auglýsing
Orri Steinn Óskarsson

Orri Steinn Óskarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

„Svekktir en því meira sem maður horfir á þetta, við erum efstir í riðlinum og töpuðum ekki leik þannig að með gluggann getum við verið sáttir en með leikinn í dag kannski svekkelsi með að ná ekki einu marki inn,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland

Það var margt í leik Íslands í dag sem var ábótavant en þeir voru í miklum vandræðum með að brjóta Eistana á bak aftur. Var eitthvað sérstakt sem klikkaði í sóknarleiknum í dag?

„Já við gerðum bara ekki nóg til að fá þá út úr stöðum og búa til svæði fyrir okkur. Þeir gerðu vel, voru þéttir og eru góðir varnarlega en við gerðum á sama tíma ekki nóg til að búa til góðar stöður fyrir okkur sjálfa.“

Völlurinn í leiknum var þungur og Orri var sjálfur lítið í boltanum. Hvernig fannst honum að spila þennan leik?

„Já aðstæðurnar gerðu okkur erfitt fyrir. Það er búið að vera mikið leikjaálag og þungur völlur í dag en það er svo sem engin ástæða til að spila fyrri hálfleikinn eins og við gerðum í dag. Maður verður að reyna að horfa framhjá aðstæðum og bara gera sitt besta.“

Leiktíminnn var heldur óvanalegur á leiknum í dag en flautað var til leiks klukkan 21:45 að staðartíma sem þýddi að leikurinn var ekki búinn fyrr en í kring um miðnætti og viðtöl ekki tekin fyrr en að klukkan var langt gengin í eitt. Orri spilar auðvitað á Spáni og aðspurður hvort hann sé búinn að ná tökum á ‘siestunni’ og hvernig honum fannst að spila svona seint segir hann:

„Ég hef alveg prófað að spila svona seint á Spáni. Það er auðvitað mikill hiti og maður hefur vanið sig á það að leggja sig á daginn af því að leikirnir eru yfirleitt mjög seint, sérstaklega á sumrin. Ég er vanari þessu heldur en að spila klukkan fjögur á daginn á Íslandi til dæmis en þetta er mjög seint maður er eiginlega bara smá þreyttur núna.“

Viðtalið við Orra má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.