Fotbolti.net
06.10.26 - 23:05
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Ísak Bergmann: Við verðum að virða þetta stig

Auglýsing
Ísak Bergmann Jóhannesson

Ísak Bergmann Jóhannesson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip

„Við erum svekktir með að hafa ekki unnið leikinn,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson eftir 0-0 jafntefli gegn Eistlandi í Tallinn í dag.

Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland

„Við verðum líka að virða þetta stig bara. Þetta var erfiður leikur, erfiður völlur. Það var bara erfitt að spila á móti þeim, þeir gerðu þetta vel og já, bara svekkjandi að hafa ekki unnið leikinn,“ hélt hann svo áfram.

Völlurinn á A. Le Coq Arena virtist þungur þegar maður horfði á leikinn, en hvernig var að spila leikinn?

„Þetta var ekki góður völlur. Það var erfitt að spila á honum, það var erfitt að ná okkar flæði í leikinn. Þeir voru mikið í löngum boltum og þetta var mikið af einvígum, mikið af seinni boltum þannig að það er alveg rétt hjá þér þetta var mjög þungur og erfiður völlur.“

Ísland er ósigrað í þessum glugga með átta stig á toppi riðilsins. Aðspurður hvernig hann metur þennan glugga beint eftir síðasta leik segir hann:

„Við erum bara ánægðir með að vera á toppnum. Við erum búnir að fá á okkur eitt mark þannig að það eru hlutir sem við getum byggt ofan á, það eru hlutir sem við getum bætt en það eru líka hlutir sem við erum bara mjög ánægðir með. Við getum byggt ofan á þetta og svo bara fókusum við á leikina tvo í nóvember.“

Viðtalið við Ísak má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.