Fótbolti.net ætlar að fjalla vel um aðra deildina í sumar eins og undanfarin ár og við ætlum að hita vel upp með því að birta spá fyrirliða og þjálfara í deildinni fram að móti.
Við fengum alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-9 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í efsta sætinu í þessari spá voru Njarðvíkngar sem fengu 153 stig af 162 mögulegum. Það eru því allflestir fyrirliða og þjálfara í annarri deildinni sem virðast spá Njarðvík upp enda hefur liðið fengið sterka leikmenn til sín. Við skulum kíkja á umfjöllun okkar um Njarðvíkurliðið.
Njarðvík
Þjálfari: Helgi Bogason
Búningar: Peysa: Græn, buxur: Grænar eða hvítar, sokkar: grænir eða hvítir.
Heimasíða: http://www.umfn.is
Við þennan sterka kjarna hefur liðið bætt við sig mönnum eins og Bjarna Sæmundssyni, Alberti Sævarssyni, Eyþóri Guðnasyni, Zoran Daníel Ljubicic, Sveini Þór Steingrímssyni og síðast en ekki síst, Gesti Gylfasyni, sem verður einnig aðstoðarmaður Helga Bogasonar. Þessir leikmenn þarfnast vart kynningar en ljóst er að þessir 6 leikmenn munu koma til með að styrkja liðið gífurlega. Bjarni Sæmundsson og Gestur léku með Keflavík í Landsbankadeildinni í fyrra, Zoran Daníel var bikarmeistari með Keflavík fyrir 2 árum en hann þjálfaði Völsung á síðustu leiktíð. Eyþór Guðnason skoraði 16 mörk fyrir Njarðvík árið 2002 þegar liðið vann sér sæti í 1.deild.
Eins og fyrr segir er það Helgi Bogason sem stýrir Njarðvíkurliðinu enn eitt árið. Hann var áður aðstoðarmaður Milan Stefán Jankovic hjá Grindavík en tók við Njarðvík árið 2001. Hefur stýrt liðinu með góðum árangri en liðið þykir leika skemmtilega knattspyrnu undir hans stjórn. Liðið var í baráttu um að komast upp í 1.deildina í fyrra en ættu að vera ansi líklegir kandítatar að komast upp í ár.
Styrkleikar: Það er nokkuð ljóst að liðið er hokið af reynslu og ekki minnkar reynslan með tilkomu nýju leikmannanna. Breiddin í Njarðvíkurliðinu er afar góð og er ljóst að þetta er styrkleiki liðsins. Þrátt fyrir meiðsli og leikbönn ætti liðið ekki að lenda í neinum teljandi vandræðum. Vörnin hjá Njarðvíkingum er afar sterk með reynsluboltann Snorra Jónsson innanborðs. Fyrir aftan vörnina stendur svo Albert Sævarsson þannig að það er ljóst að lið Njarðvíkur verður ekki árennilegt í sumar.
Veikleikar: Veikleikarnir eru eflaust þeir sömu og undanfarin ár. Áhuginn í kringum knattspyrnuna hjá félaginu virðist ekki mikill. Áhorfendur eru ekki margir og ákveðið áhugaleysi ríkir. Hvað er það sem veldur því skal ósagt látið en spurning er hvort áhuginn taki kipp við komu nýju leikmannanna. Árangurinn á útivelli í fyrra var slakur og vann liðið einungis þrjá leiki af níu. Ef liðið ætlar sér upp, þá þarf liðið að reyta fleiri stig á útivelli.
Lykilmenn: Albert Sævarsson, Bjarni Sæmundsson og Snorri Már Jónsson.
Komnir: Albert Sævarsson frá B 36, Bjarni Sæmundsson frá Keflavík, Guðmundur Árni Þórðarson frá Keflavík, Gestur Arnar Gylfason frá Keflavík, Eyþór Guðnason frá HK, Rafn Markús Vilbergsson frá Val, Rúnar Freyr Holm frá Víði, Sveinn Þór Steingrímsson frá Grindavík, Zoran Daníel Ljubicic frá Völsungi.
Farnir: Hafsteinn Ingvar Rúnarsson í Reynir S., Samir Mesetovic í Leiknir F., Finnur Örn Þórðarson til Danmerkur.
Spá fyrirliða og þjálfara:
1. Njarðvík 153
2. Fjarðabyggð 135
3. Afturelding 121 stig
4. ÍR 116 stig
5. Selfoss 93 stig
6. KS/Leiftur 83 stig
7. Völsungur 79 stig
8. Reynir Sandgerði 53 stig
9. Sindri 43 stig
10. Huginn 24 stig



