lau 20. október 2018 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Dagur spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Jón Dagur í leik með U21 landsliðinu.
Jón Dagur í leik með U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gleði, gleði. Enska úrvalsdeildin fer aftur að rúlla aftur í dag eftir landsleikjahlé.

Skemmtikrafturinn Sóli Hólm fékk sex rétta þegar hann spáði í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Jón Dagur Þorsteinsson, leikmaður Vendsyssel í Danmörku (á láni frá Fulham) spáir í leikina að þessu sinni. Jón Dagur er 19 ára gamall en hann var valinn í síðasta A-landsliðshóp.

Chelsea 3 - 1 Man Utd (11:30 í dag)
Það er allt í bulli hjá United. Hazard klárar þetta með þrennu í fyrri halfleik. Pogba verður tekinn út af í hálfleik og fer í verkfall eftir leik.

Bournemouth 1 - 0 Southampton (14 í dag)
Hornspyrna á 89 mínútu, hundleiðinlegur leikur.

Cardiff 3 - 1 Fulham (14 í dag)
Þreyta í Fulham eftir landsleikjahlé.

Man City 3 - 2 Burnley (14 í dag)
City siglir þessu heim í skemmtilegum leik. Jói Berg gerir sér lítið fyrir og verður með 2 assist.

Newcastle 0 - 0 Brighton (14 í dag)
Því miður.

West Ham 3 - 4 Tottenham (14 í dag)
Bráðskemmtilegur leikur þar sem Kane fer á kostum og skorar fjögur. Hann verður með winner á 93 mínútu.

Wolves 2 - 1 Watford (14 í dag)
Watford enn í molum eftir síðasta skell.

Huddersfield 1 - 1 Liverpool (16:30 í dag)
Margir meiddir hjá Liverpool. Því miður með of þunnan hóp. Verður dýrt í baráttunni um Evrópudeildarsæti fyrir þá.

Everton 2 - 1 Crystal Palace (15 á morgun)
Everton er komið á flug og Gylfi á eldi. Hann klárar þennan leik fyrir Everton.

Arsenal 3 - 0 Leicester (19 á mánudag)
Arsenal tekur sinn sjöunda leik í röð í deildinni. Lacazette í stuði og verður með tvennu.

Fyrri spámenn:
Baldur Sigurðsson (7 réttir)
Kjartan Atli Kjartansson (6 réttir)
Rikki G (6 réttir)
Rúnar Alex Rúnarsson (6 réttir)
Sóli Hólm (6 réttir)
Logi Ólafsson (5 réttir)
Sam Hewson (4 réttir)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (3 réttir)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 9 8 0 1 14 5 +9 24
2 Man City 9 7 0 2 20 10 +10 21
3 Brighton 9 6 1 2 24 7 +17 19
4 Chelsea 9 5 1 3 19 15 +4 16
5 Liverpool 9 4 3 2 11 9 +2 15
6 Brentford 9 3 5 1 16 9 +7 14
7 Everton 9 3 4 2 9 9 0 13
8 Bournemouth 9 3 3 3 14 13 +1 12
9 Tottenham 9 3 3 3 10 10 0 12
10 Aston Villa 9 3 3 3 10 13 -3 12
11 Hull City 9 2 5 2 11 10 +1 11
12 Leeds 9 2 5 2 9 8 +1 11
13 Newcastle 9 3 2 4 12 15 -3 11
14 Ipswich Town 9 3 2 4 14 18 -4 11
15 Fulham 9 2 3 4 9 11 -2 9
16 Coventry 9 3 0 6 9 16 -7 9
17 Man Utd 9 1 4 4 10 15 -5 7
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
18 Crystal Palace 9 2 1 6 9 21 -12 7
19 Nott. Forest 9 1 3 5 6 12 -6 6
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Sunderland 9 1 2 6 7 17 -10 5
Slapp
banner
banner