Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
KR
3
2
FH
0-1 Kjartan Kári Halldórsson '27
Ástbjörn Þórðarson '47 1-1
1-2 Kjartan Kári Halldórsson '63
Eiður Gauti Sæbjörnsson '66 2-2
Eiður Gauti Sæbjörnsson '91 3-2
29.06.2025  -  19:15
AVIS völlurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Logn, bjart og allir glaðir
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 1232
Maður leiksins: Eiður Gauti Snæbjörnsson
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Júlíus Mar Júlíusson
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason
11. Aron Sigurðarson (f)
16. Matthias Præst ('73)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
28. Hjalti Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
6. Alexander Helgi Sigurðarson
14. Alexander Rafn Pálmason
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Óliver Dagur Thorlacius
20. Atli Hrafn Andrason ('73)
26. Hrafn Tómasson
27. Róbert Elís Hlynsson
37. Auðunn Gunnarsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Theodór Elmar Bjarnason
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Jón Birgir Kristjánsson
Guðmundur Óskar Pálsson
Lúðvík Júlíus Jónsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KR sigur Langþráður sigur KR eftir frábæran seinni hálfleik. Lenda tvívegis undir en standa uppi sem sigurvegarar.

Sjöunda tap FH á gervigrasi staðreynd.
94. mín
Þetta er að klárast! Þvílíkur endurkomusigur hjá KR hér í aðsígi. Eiður Gauti með tvö mörk á hálftíma.
91. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Aron með viðstöðulausa fyrirgjöf fyrir markið og Eiður Gauti mætir í svæðið milli varnar og markmanns og stýrir boltanum í markið af stuttu færi.

Júlíus Mar með lykilsendingu á Aron sem átti þessa geggjuðu fyrirgjöf.
90. mín
Uppbótartíminn fjórar mínútur
88. mín
Aron Sig með skot með vinstri frá vítateigslínunni yfir markið.
86. mín
Inn:Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Út:Grétar Snær Gunnarsson (FH)
Síðustu skiptingar FH í þessum leik.
86. mín
Inn:Dagur Örn Fjeldsted (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Síðustu skiptingar FH í þessum leik.
83. mín
Fáum við sigurmark? Ég er enn að jafna mig á því að Atli Hrafn hafi ekki skorað úr þessu færi. Hann var sennilega svona 4-5 metrum frá markinu. Ekki meira og jafnvel minna.
81. mín
Inn:Bragi Karl Bjarkason (FH) Út:Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
81. mín
DAUÐAFÆRI - JA HERNA HÉR Varamaðurinn, Atli Hrafn í dauða, dauða dauðafæri á fjærstönginni en skallinn hans framhjá!!!
79. mín
Ástbjörn leggur boltann fyrir Aron Sigurðarson sem er í ansi góðu færi inn í miðjum vítateig FH-inga en hann virðist ekki hitta boltann og boltinn framhjá fjærstönginni.

Þarna hefði Aron getað gert töluvert betur, töluvert.
77. mín
Kjartan Kári með stórhættulega fyrirgjöf og stórhætta skapaðist en KR náði að hreinsa frá á síðustu stundu.
73. mín
Inn:Atli Hrafn Andrason (KR) Út:Matthias Præst (KR)
68. mín
Grétar á gulu og sleppur Grétar Snær stálheppinn að sleppa. Keyrir í bakið á Jóhannesi Kristni en Ívar Orri virðist ekki hafa séð það.
68. mín
Inn:Kristján Flóki Finnbogason (FH) Út:Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
Tvöföld breyting hjá Heimi Guðjónssyni.

Björn Daníel orðinn vel þreyttur síðustu mínútur.
68. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
Tvöföld breyting hjá Heimi Guðjónssyni.

Björn Daníel orðinn vel þreyttur síðustu mínútur.
67. mín
Það er sennilega enginn fegnari en Halldór Snær í marki KR að liðsfélagar hans náð að jafna strax.
66. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason
KR hafa jafnað strax Þarna klikkar rangstöðu vörn FH-inga þar sem Ahmad Faqa gerir Eið Gauta réttstæðan.

Jóhannes Kristinn þræðir boltanum inn fyrir vörn FH af stuttu færi, vörnin stígur upp en Faqa situr eftir. Eiður Gauti er því skyndilega einn í teignum með allt markið fyrir framan sig og leggur hann auðveldlega framhjá Rosenörn í markinu.
63. mín MARK!
Kjartan Kári Halldórsson (FH)
BEINT úr aukspyrnu!

Halldór Snær í marki KR fær falleinkunn fyrir þetta.

Aukaspyrnan frá vinstri, Kjartan Kári lætur vaða af löngu færi í fjærhornið.

Halldór Snær, tekur eitt og jafnvel tvö lítil skref í átt að nærhorninu eins og hann hafi bara gert ráð fyrir að Kjartan myndi skjóta þangað. Boltinn hinsvegar í fjærhornið og Halldór nær ekki til boltans.
61. mín
Sigurður Bjartur með fast skot meðfram gervigrasinu frá vítateigslínunni en Halldór Snær ver.
61. mín
Kjartan Kári með stórhættulega sendingu yfir vörn KR þar sem Björn Daníel kemur í góðu hlaupi en sendingin aðeins of föst og boltinn beint í lúkurnar á Halldóri Snæ.
59. mín
KR fær aukaspyrnu á hættulegum stað Vel yfir markið frá Jóa Kidda.
57. mín
Leikurinn í jafnvægi um þessar stundir.
54. mín
Yfir markið Aukaspyrna Arons, yfir markið. Lítil sem engin hætta þarna. Skulum ekkert vera að flækja þetta. Það var engin hætta.
53. mín Gult spjald: Baldur Kári Helgason (FH)
Fer aftan í Guðmund Andra. Rétt ákvörðun.

KR fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir framan vítateig FH.
51. mín
Jóhannes Kristinn fær dauðafæri, eða gott færi nálægt markinu úr þröngu færi, skotið allt í lagi en Rosenörn nær að vera fyrir.
51. mín
Eftir þunga sókn FH-inga inní vítateig KR þá missa FH-ingar boltann og KR sækir hratt.

Michael Præst er hinsvegar alltof alltof lengi með boltann. Kr-ingarnir voru 5 á 3 á tímabili en sóknin rennur út í sandinn, sökum þess hve Præst var lengi að athafna sig og missir boltann.
47. mín MARK!
Ástbjörn Þórðarson (KR)
Stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason
Einfalt og gott KR fær sínu áttundu hornspyrnu í leiknum.

Jóhannes Kristinn tekur spyrnuna, undir mittishæð á nærstöngina þar sem Ástbjörn er vel staðsettur og stýrir boltanum á mitt markið og Rosenörn nær ekki til boltans.
46. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Það verður fróðlegt að sjá hvort Heimir Guðjóns. haldi áfram í króatísku 5-1 vörninni eða fari í aggresíva 3-3 vörn líkt og Suður-Kóreu spilaði hér í denn.
45. mín
Hálfleikur
Bæði lið komin aftur út á völl og það styttist í að leikurinn fari af stað á nýjan leik.
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir yfir í hálfleik eftir mark frá Kjartani Kára.

KR-ingar verið töluvert meira með boltann en það hefur þó ekki ennþá reynt almennilega á Mathias Rosenörn í marki FH.

KR 80% með boltann - það er svakalegt.
45. mín
Eiður Gauti með skalla framhjá fjærstönginni eftir sjöundu hornspyrnu KR-inga í leiknum.
45. mín
Uppbótartími tvær mínútur
45. mín
Hjalti með skalla framhjá eftir hornspyrnu.

Hjalti í erfiðri stöðu og nær engum krafti í þennan skalla en hann var óvenju laus inn í teignum hinsvegar.
44. mín
Jóhannes Kristinn reynir að fiska víti en Ívar Orri lætur ekki plata sig. KR-ingar fá hornspyrnu hinsvegar.
42. mín Gult spjald: Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
Sýnist eins og að hann hafi kastað Hjalta Sig. í jörðina eftir þetta allt saman.

Sennilega pirraður með sjálfan sig að hafa ekki gert betur í færinu.
42. mín
Skyndisókn Úlfur Ágúst allt í einu bara kominn í alltof gott færi hinum megin, en skotið slappt. Laust og auðvelt fyrir Halldór Snær að verja þetta.
42. mín
Guðmundur Andri við það að sleppa einn í gegn en nær ekki til boltans. Jóhannes Kristinn gerði vel en Guðmundur óheppinn.
41. mín
KR-ingar reyna og reyna en ekkert gengur.
35. mín
Hjalti Sig með skot við vítateigslínuna sem fer í ísak Óla og rétt yfir markið. Michael Præst gerði mjög vel í aðdragandanum, hélt boltanum vel og renndi síðan boltanum út á Hjalta.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Hjalti með fyrirgjöfina Eiður Gauti með skalla yfir markið en er dæmdur brotlegur.
29. mín
Köld vatnsgusa Þetta mark er köld vatnsgusa í KR-ingana sem hafa verið töluvert meira með boltann í öllum leiknum og líklegri en FH fyrsta hálftímann en það er ekki spurt að því. Króatíska 5-1 vörn FH-inga rígheldur.
27. mín MARK!
Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Fyrirgjöf frá Sigurði Bjarti frá hægri sem fer í gegnum allan pakkann. Kjartan Kári fær boltann fyrir utan teig vinstra megin, leikur boltanum í átt að vítapunktinum, á skot frá vítateigslínunni sem á viðkomu í varnarmann KR og Halldór Snær ræður ekki við þetta.
25. mín
Björn Daníel fær boltann í höfuðið af stuttu færi frá samherja sínum, Ahmad Faqa. Björn Daníel liggur eftir og Ívar gerir það eina í stöðunni að stöðva leikinn strax.

KR-ingar voru í góðri stöðu með boltann fyrir framan vítateig FH-inga.
25. mín
Aron Þórður hleypur nokkra metra, ef ekki tugi metra með boltann og er kominn alla leið inn í teig FH. Hann lendir hinsvegar í eldgömlu samlokunni og fellur við inn í teig og sóknin rennur út í sandinn.
22. mín
Þetta er rosa mikið næstum því hjá KR um þessar mundir. FH-ingar þurfa að fara lengja tímann með boltann. Þetta endar bara á einn veg, eða hvað?
20. mín
Baldur Kári sleppur við brot. Tekur bæði boltann og Jóhannes Kristin en ívar Orri lætur leikinn halda áfram. KR-ingar ósáttir.
20. mín
Fyrir handboltaþjálfara eins og ég er, þá líkist varnarleikur FH eins og króatísk 5-1 vörn með Björn Daniel fyrir framan. Afar skipulagt og FH-ingar gefa fá færi á sér.

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata yrði ánægður með þessa vörn.

KR-ingar eru töluvert meira með boltann og ráða ferðinni þessa stundina.
18. mín
Jóhannes Kristinn með skalla úr erfiðri stöðu yfir markið eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Tryggva.

KR-ingar líklegri eins og staðan er núna. Það þarf hinsvegar að gera meira en þetta.
16. mín
Aron Sig með frábæra fyrirgjöf en ísak Óli stangar boltann aftur fyrir. Ísak Óli rétt á undan Mathias Præst í boltann.
14. mín Gult spjald: Grétar Snær Gunnarsson (FH)
Brýtur á Eiði Gauta á miðjum vellinum. Grétar stöðvar skyndisókn KR-inga.
13. mín
Kjartan Kári tekur hornspyrnu fyrir FH, frá hægri. Björn Daníel á fjærstönginni sem skallar í átt að markinu en Hjalti Sig nær að hreinsa frá.
12. mín
Kjartan Kári með hörku fyrirgjöf frá vinstri sem Sigurður Bjartur kastar sér í átt að en nær ekki til. Halldór Snær gerir vel og grípur fyrirgjöfina.
7. mín
Ástbjörn Þórðarson fær frábært tækifæri til að koma KR yfir en skot hans yfir markið.

Hornspyrnan frá Jóhannes Kristni, lá inn á nærstöngina. Ástbjörn tekur við boltanum og nær góðum snúningi með boltann en gleymir að halla sér yfir boltann. Hann mun sennilega muna eftir því næst.
6. mín
KR-ingar fá fyrsta hornið
6. mín
Sigurður Bjartur stígar á Aron Þórð sem fellur niður. Nú fær Sigurður Bjartur tiltal.
5. mín
Athyglisvert að sjá að Björn Daníel er fremstur FH-inga í þeirra varnarleik og sóknarmenn FH þétta pakkann.
2. mín
Aron Þórður brýtur á Birni Daníel. Er seinn í þessa tæklingu og fær aðvörun frá Ívari Orra.

Alltof seinn. Hefði hæglega verið hægt að réttlæta gult spjald.
1. mín
FH í fimm manna vörn Liðsuppstilling FH
Roseorn
Birkir Valur - Faqa - Ísak Óli - Grétar Snær - Arngrímur
Baldur Kári - Björn Daníel (Fölsk nía)
Sigurður Halls. - Úlfur Ágúst - Kjartan Kári

Liðsuppstilling KR
Halldór Snær
Ástbjörn - Hjalti Sig. - Júlíus Mar - Gabríel Hrannar
Aron Þórður - Mathias Præst - Jóhannes Kristinn
Aron Sig - Eiður Gauti - Guðmundur Andri
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn af stað.
Fyrir leik
Þetta fer alltaf að fara af stað.

Liðin skiptast á vallarhelming. Óvænt.
Fyrir leik
Björn Daníel markahæstur FH-inga Hjá FH hefur Björn Daníel skorað flest mörk, þrjú talsins. Fimm leikmenn hafa síðan skora tvö mörk og Tómas Orri, Úlfur Ágúst og Baldur Kári hafa síðan skorað eitt mörk hver.
Fyrir leik
Aron markahæstur KR-inga Aron Sigurðarson er markahæstur í liði KR í sumar með sex mörk. Alls hafa tólf KR-ingar skorað fyrir liðið í Bestu deildinni í sumar.
Fyrir leik
Þetta er ekki flókið, yfir 4 mörk á Epic er 2 í stuðul. Njótið leiksins og eigið gott kvöld.
Fyrir leik
Viðrar vel til fótbolta Það er ekki hægt að kvarta yfir veðrinu hér í Laugardalnum um þessar mundir. Bjart yfir og algjört logn.
Fyrir leik
Rikki Gjé gefur og gefur Finnur Tómas og Atli Sigurjónsson eru báðir meiddir. Þeir meiddust á æfingu KR-liðsins í aðdraganda leiksins og eru því ekki leikfærir í þessum mikilvæga leik fyrir KR í kvöld. Mikið áfall fyrir KR.
Fyrir leik
Hvar er Finnur Tómas og Atli Sigurjóns? Nú þurfa menn að gefa sig fram og tjá sig.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR gerir þrjár breytingar á liði sínu frá tapinu á Hlíðarenda í síðustu umferð. Guðmundur Andri Tryggvason, Ástbjörn Þórðarson og Aron Þórður Albertsson koma allir inn í lið KR í dag. Alexander Helgi Sigurðarson fær sér sæti á bekknum Atli Sigurjónssn og Finnur Tómas Pálmason eru utan hóps hjá KR í kvöld.

Heimir Guðjónsson þjálfari FH tværbreytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Vestra. Grétar Snær Gunnarsson kemur aftur inn í lið FH eftir leikbann og Arngrímur Bjartur Guðmundsson kemur einnig inn í lið FH. Böðvar Böðvarsson og Tómas Orri Róbertsson taka út leikbann hjá FH í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Finnur Tómas er ekki með í kvöld.
Fyrir leik
Spámaðurinn Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru. Ási hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins í yfir 100 leiki og er á leið á sitt þriðja stórmót með liðinu. Í kvöld spilar kvennalandsliðið æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikur liðsins fyrir EM í Sviss.

KR 4 - 2 FH (19:15 í kvöld)
Miklar tilfinningar sem bærast um þegar mínir gömlu félagar mætast á Avis-vellinum. Þetta verður tricky leikur. Óskar mun koma á óvart með því að leggjast tilbaka og beita skyndisóknum, eitthvað sem hefur oft virkað gegn FH í gegnum tíðina. FH skorar allavega tvö en ég held að KR skori fjögur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Heimir Guðjónsson orðinn leikjahæsti þjálfarinn Heimir stýrði FH til sigurs gegn Vestra á sunnudaginn en það var 339. leikurinn hans sem þjálfari í efstu deild. Hann bætti met Ólafs Jóhannessonar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Vikan verið fín í Vesturbænum „Vikan hefur bara verið mjög fín og leikurinn leggst mjög vel í mig," sagði Óskar Hrafn við Steinke í aðdraganda leiksins hér í kvöld.

„Það er eins ömurlegt og það verður að tapa fyrir Val 6-1, það segir sig sjálft. Það eru margar tilfinningar sem koma upp eftir leikinn. Ég er á því að úrslitin hafi nú ekki gefið alveg rétta mynd af leiknum, við köstum leiknum frá okkur þegar fjórða markið kemur, þá bara hættum við. Það er eitthvað sem við þurfum að læra af."

„Mér finnst við hafa verið góðir í því í nánast öllum leikjunum hingað til að hætta aldrei. Ég veit ekki hvort það komi einhvern tímann að þolmörkum hjá mönnum og þeir bara hætta. Það er eitthvað sem við verðum að læra af og passa að gerist ekki aftur. Ef við höfum ekki baráttu og dugnað, þá er ekkert eftir af liði, það er bara þannig."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Risaleikur fyrir bæði lið KR situr fyrir leik kvöldsins einu stigi frá fallsæti eða í 10 sæti deildarinnar með 13.stig. KR fékk alvöru skell á Hlíðarenda í síðustu þegar liðð tapaði 6-1 gegn Val. Liðið verður bara að fara að skrúfa á þennan leka og því fyrr því betra.

FH kemur inn í þennan leik eftir sigur heima gegn Vestra í síðustu umferð. Liðið situr í 8.sæti deildarinnar með 14.stig.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson flautar leikinn hér í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson.

Helgi Mikael Jónasson er svo fjórði dómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Sú lang besta Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á Avisvöllinn í Laugardal þar sem KR og FH mætast í 13.umferð Bestu deildarinnar.

Verður þetta síðasti leikurinn hjá KR þar sem þeir þurfa spila heimaleikina sína á Avisvellinum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
2. Birkir Valur Jónsson
4. Ahmad Faqa
6. Grétar Snær Gunnarsson ('86)
7. Kjartan Kári Halldórsson ('86)
9. Sigurður Bjartur Hallsson ('81)
10. Björn Daníel Sverrisson (f) ('68)
22. Ísak Óli Ólafsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('68)
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
11. Bragi Karl Bjarkason ('81)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
17. Dagur Örn Fjeldsted ('86)
18. Einar Karl Ingvarsson ('68)
27. Jóhann Ægir Arnarsson ('86)
32. Gils Gíslason
34. Óttar Uni Steinbjörnsson
45. Kristján Flóki Finnbogason ('68)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Emil Pálsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie
Númi Már Atlason

Gul spjöld:
Grétar Snær Gunnarsson ('14)
Úlfur Ágúst Björnsson ('42)
Baldur Kári Helgason ('53)

Rauð spjöld: