Fotbolti.net
27.06.25 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ási Haralds spáir í 13. umferð Bestu deildarinnar

Ási Haralds og Steini, landsliðsþjálfarar Íslands.

Ási Haralds og Steini, landsliðsþjálfarar Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í kvöld fer 13. umferð Bestu deildar karla af stað. Andrea Rut Bjarnadóttir var með einn leik réttan þegar hún spáði í síðustu umferð.

Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru. Ási hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins í yfir 100 leiki og er á leið á sitt þriðja stórmót með liðinu. Í kvöld spilar kvennalandsliðið æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikur liðsins fyrir EM í Sviss.
KA 0 - 2 Valur (18:30 í kvöld)
Smá basl á norðanmönnum upp á síðkastið en Valsarar á siglingu eftir nauman sigur á KR í síðustu umferð. Ferðalagið norður mun sitja í Völsurunum, lokað í Staðarskála en þeir vinna fagmannlegan sigur 0-2.

Stjarnan 2 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Þetta verður hressasti leikur umferðarinnar. Hlakka til að sjá viðtöl eftir leik. Stjarnan kemst í 2-0 en Blikar jafna um miðjan seinni hálfleik af miklu harðfylgi.

Fram 2 - 0 ÍBV (17:00 á sunnudag)
Það verður strembið fyrir Eyjamenn að koma á gervigrasið og Framarar skora bæði mörkin í fyrri hálfleik. Loka síðan leiknum án vandræða.

Vestri 0 - 1 ÍA (18:00 á sunnudag)
Mínir menn á Skaganum fara vestur eftir góða æfingaviku með nýjum þjálfara. Hristir eitthvað upp í strákunum sem hafa verið linir undanfarið og ekki að sökum að spyrja; þeir ranka við sér og kreista 0-1 sigur. Viktor Jónsson skorar. Mitt eina gisk á markaskorara í þessari umferð.

Víkingur R. 4 - 1 Afturelding (19:15 á sunnudag)
Afturelding komið á útileikja-run og stefna á sigur í Víkinni. En þeir plata ekki Víkingana sem skora fjögur þrátt fyrir að Afturelding komist snemma yfir í leiknum. En þetta verður engin flugeldasýning hjá Víkingum þrátt fyrir allt.

KR 4 - 2 FH (19:15 á sunnudag)
Miklar tilfinningar sem bærast um þegar mínir gömlu félagar mætast á Avis-vellinum. Þetta verður tricky leikur. Óskar mun koma á óvart með því að leggjast tilbaka og beita skyndisóknum, eitthvað sem hefur oft virkað gegn FH í gegnum tíðina. FH skorar allavega tvö en ég held að KR skori fjögur.

Fyrri spámenn:
Eggert Aron (5 réttir)
Aron Guðmunds (4 réttir)
Atli Barkar (4 réttir)
Maggi Matt (4 réttir)
Eyþór Aron Wöhler (3 réttir)
Þór Llorens (3 réttir)
Hinrik Harðar (2 réttir)
Einar Jónsson (2 réttir)
Halldór Smári (2 réttir)
Fanndís Friðriks (2 réttir)
Andrea Rut (1 réttur)
Kári Sigfússon (1 réttur)
Viktor Jóns skorar.

Viktor Jóns skorar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nær Óskar Hrafn í sigur?

Nær Óskar Hrafn í sigur?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.