Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
banner
   fim 26. júní 2025 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimir orðinn leikjahæsti þjálfarinn í sögu efstu deildar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er orðinn reynslumesti þjálfari í sögu efstu deildar.

Heimir stýrði FH til sigurs gegn Vestra á sunnudaginn en það var 339. leikurinn hans sem þjálfari í efstu deild. Hann bætti met Ólafs Jóhannessonar.

Heimir lauk fótboltaferlinum hjá FH árið 2005 og tók við sem aðstoðarþjálfari liðsins í kjölfarið, hann var einmitt aðstoðarþjálfari Óla Jó.

Hann tók við sem aðalþjálfari árið 2008 og stýrði liðinu til 2017 áður en hann hélt til Færeyja og tók við HB og vann deildar og bikarmeistaratitil. Hann tók síðan við Val fyrir sumarið 2020 áður en hann snéri aftur í Kaplakrika fyrir sumarið 2023.

Heimir hefur stýrt FH til fimm Íslands­meist­ara­titla sem aðalþjálf­ari, síðast 2016, og eins bikar­meist­ara­titils og þá vann hann einn Íslandsmeistaratitil með Val. Liðið er sem stendur í 8. sæti Bestu deildarinnar með 14 stig eftir 12 umferðir.


Athugasemdir