
'Mikilvægt í svona verkefni að menn muni að það sé ekki hægt að láta einhver úrslit skilgreina nákvæmlega hver þú ert'

'Vissulega eru þeir með eilítið betri árangur á heimavelli heldur en á útivelli, en mjög öflugt lið engu að síður'
„Vikan hefur bara verið mjög fín og leikurinn leggst mjög vel í mig," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við Fótbolti.net.
Framundan er leikur gegn FH á AVIS vellinum á morgun. KR tapaði 6-1 gegn Val á mánudag þar sem leikurinn var spennandi allt þar til Valur skoraði sitt fjórða mark og gerði út um leikinn þegar um 20 mínútur lifðu leiks.
Framundan er leikur gegn FH á AVIS vellinum á morgun. KR tapaði 6-1 gegn Val á mánudag þar sem leikurinn var spennandi allt þar til Valur skoraði sitt fjórða mark og gerði út um leikinn þegar um 20 mínútur lifðu leiks.
Vikan í KR ákvarðast ekki af úrslitum eins leiks
„Vikan hefur verið fín því það góða við KR er að þetta snýst ekki allt um úrslit eins leiks. Vikan í KR ákvarðast ekki af úrslitum eins leiks. Ég er búinn að horfa upp á 3. flokkinn og 5. flokkinn spila frábærlega, vikan í KR er búinn að vera virkilega góð."
Hættu þegar fjórða markið kom
Var þetta mikið sjokk á mánudaginn?
„Það er eins ömurlegt og það verður að tapa fyrir Val 6-1, það segir sig sjálft. Það eru margar tilfinningar sem koma upp eftir leikinn. Ég er á því að úrslitin hafi nú ekki gefið alveg rétta mynd af leiknum, við köstum leiknum frá okkur þegar fjórða markið kemur, þá bara hættum við. Það er eitthvað sem við þurfum að læra af."
„Mér finnst við hafa verið góðir í því í nánast öllum leikjunum hingað til að hætta aldrei. Ég veit ekki hvort það komi einhvern tímann að þolmörkum hjá mönnum og þeir bara hætta. Það er eitthvað sem við verðum að læra af og passa að gerist ekki aftur. Ef við höfum ekki baráttu og dugnað, þá er ekkert eftir af liði, það er bara þannig."
Sameiginlegt verkefni allra KR-inga
Þegar menn hittast aftur á æfingu eftir leik, snýst þetta þá um að rífa menn upp, eða ná menn að ýta þessu strax fyrir aftan sig?
„Mér fannst menn vera mjög flinkir við það. Ég held það sé mjög mikilvægt í svona verkefni að menn muni að það sé ekki hægt að láta einhver úrslit skilgreina nákvæmlega hver þú ert. Þú tapar illa, ert sár og svekktur út í allt og umheiminn, en svo kemur nýr dagur og þá vaknar þú bara og ert þá að vinna í sameiginlegu verkefni allra KR-inga. Það er að gera KR að öflugu félagi. Þá verða menn bara að mæta með kassann úti og hausinn uppi, það þýðir ekkert að mæta með hausinn undir hendinni, það er fullkomlega vonlaust og tilgangslaust og algjör óþarfi."
„Mér fannst menn vera sannir því að sama hvað á bjátar, þá erum við að vinna saman að verkefni sem tekur tíma. Það verður þjáning í því. KR-ingar eru á þeim stað núna að þeir þurfa að þjást. Hversu lengi sú þjáning varir, það verður að koma í ljós. Menn verða að þjást, verða að kunna að þjást og geta þjást. Án þjáningarinnar verður árangur og uppskera erfiðisins einskis virði. Ef þú þolir ekki að þjást í einhvern tíma, og vilt alltaf árangur strax, þá áttu í rauninni ekki skilið að upplifa góðu stundirnar."
Einstaka hlutir innan rammans geta breyst
Að FH, ert þú að aðlaga leik liðsins eitthvað, eða verður reynt það sama og gegn Val?
„Við mætum með okkar gildi að vopni, auðvitað þurfum við aðeins að skoða hvað FH-ingar gera, þeir eru góðir í mörgum hlutum. Þeir eru með kröftugt lið, öflugt lið og sterkir í föstum leikatriðum. Þeir eru góðir í að því sækja hratt og með þétt og vel skipulagt lið."
„Auðvitað skoðar maður alltaf andstæðinginn út frá því hvar möguleikarnir á því að fara í gegnum þá liggja. Möguleikarnir eru kannski aðrir en á móti Val, Vestra, Víkingi eða Breiðabliki."
„Svo þarf líka að skoða hvar styrkleiki þeirra liggur sóknarlega, það getur verið öðruvísi en hjá öðrum liðum, og við þurfum auðvitað aðeins að aðlaga okkur. Það er ekki þannig að við mætum bara og stingum bara hausnum í sandinn; gerum alltaf það sama og skiptir ekki máli á móti hverjum við erum að spila."
„Það sem er mikilvægt og ég þreytist ekki á að segja, er að grunnhugmyndafræðin, sem er að reyna fara hátt á lið og stjórna leiknum með boltann, að hún breytist ekki. Grunnurinn breytist ekki en einstaka hlutir innan þess ramma geta breyst eftir því hverjum þú ert að mæta. FH-ingar hafa sýnt það í sumar að þeir eru með öflugt lið. Vissulega eru þeir með eilítið betri árangur á heimavelli heldur en á útivelli, en mjög öflugt lið engu að síður."
„Þeir eru með frábæran þjálfara (Heimi Guðjónsson), þann reynslumesta í sögunni. Við eigum bara von á mjög erfiðum leik."
Virðing frá Völsurum?
Valsarar leyfðu ykkur að sækja á sig og Tryggvi Hrafn átti að fá bolta inn fyrir vörnina ykkar. Verður þetta ekki bara eins á morgun?
„Það má vel vera að þeir bíði eftir okkur og Kjartan Kári bíða bara og svindla, það má vel vera. Við þurfum að vera undirbúnir undir það, alveg eins og við þurfum að vera undirbúnir undir margt annað."
„Við þurfum að passa betur upp á boltann, passa að láta ekki veiða okkur út í einhverja vitleysu. Við erum á köflum mjög fáir til baka og þá þurfum við að passa extra vel upp á boltann."
„Það má líka líta á það sem vott um einhvers konar virðingu sú nálgun sem Valsararnir tóku á eigin heimavelli á móti okkur. Það má horfa á það þannig ef maður setur upp þau gleraugu; gera enga tilraun til að spila einhvern skipulagðan fótbolta og spila aldrei frá markinu sínu."
„Það er hægt að fara hundrað leiðir að því að spila fótbolta og við verðum bara að aðlaga okkur að því sem andstæðingurinn gerir. Ef menn leggjast lágt þá þurfum við að passa að missa ekki boltann á vondum stöðum. Ef FH fer á okkur þurfum við að vera hugmyndaríkir, hreyfa okkur vel án bolta, ekki hanga lengi á boltanum og vera fljótir að taka ákvarðanir. Við megum ekki láta þá veiða okkur úti við hliðarlínu; á þeim stöðum sem þeir vilja vinna boltann."
„Við þurfum að verða betri, betri og betri. Það er engin töfralausn, snýst bara um að gefa gaum að því sem þú ert að gera hverju sinni, vera einbeittur, passa upp á að það lélegasta sem þú gerir sé gott. Við erum í grunninn skilgreindir af því hversu góðir við erum þegar við erum upp á okkar versta, miklu frekar heldur en þegar við erum upp á okkar besta. Það eru slæmu stundirnar sem hafa verið að særa okkur."
„Eina leiðin til að ná því fram er með því að setja kröfur á sjálfan sig, setja kröfur á liðsfélagana og vera smá meðvitaður um að þeim mun hærra sem þitt versta er, þeim mun betri ertu," segir Óskar.
Leikurinn gegn FH hefst klukkan 19:15 annað kvöld. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 12 | 8 | 2 | 2 | 24 - 13 | +11 | 26 |
2. Breiðablik | 13 | 8 | 2 | 3 | 24 - 18 | +6 | 26 |
3. Valur | 13 | 7 | 3 | 3 | 35 - 19 | +16 | 24 |
4. Stjarnan | 13 | 6 | 2 | 5 | 24 - 24 | 0 | 20 |
5. Vestri | 12 | 6 | 1 | 5 | 13 - 9 | +4 | 19 |
6. Afturelding | 12 | 5 | 2 | 5 | 14 - 15 | -1 | 17 |
7. Fram | 12 | 5 | 1 | 6 | 19 - 18 | +1 | 16 |
8. FH | 12 | 4 | 2 | 6 | 17 - 16 | +1 | 14 |
9. ÍBV | 12 | 4 | 2 | 6 | 13 - 19 | -6 | 14 |
10. KR | 12 | 3 | 4 | 5 | 31 - 32 | -1 | 13 |
11. KA | 13 | 3 | 3 | 7 | 12 - 25 | -13 | 12 |
12. ÍA | 12 | 3 | 0 | 9 | 13 - 31 | -18 | 9 |
Athugasemdir