SKÝRSLAN: Steindautt í Árbænum
Hvað réði úrslitum?
Þéttur og góður varnarleikur beggja liða og dapur sóknarleikur er uppskrift af markalausum leik.
Bestu leikmenn
1. Ármann Smári Björnsson
Allt í öllu í varnarleik ÍA sem var traustur. Skallaði ófáa boltana frá Fylki frá og átti síðan hættulegan skalla undir lokin hinum meginum á vellinum.
2. Andrés Már Jóhannesson
Var manna frískastur í Fylkisliðinu. Gerði engin mistök varnarlega og átti þátt í nokkrum fínum sóknum Fylkis.
Atvikið
Seinna gula spjaldið sem Arnar Már fékk og svo atvikið þegar Jón Vilhelm féll inn í teignum. Atvik sem hægt er að deila um. Ætla leyfa ykkur að gera það, ef þið hafið áhuga.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið geta enn fallið. Það eru tólf stig í pottinum. Fylkismenn eru sjö stigum frá falli á meðan Skagamenn eru fimm stigum frá falli.
Vondur dagur
Leikurinn í heild sinni var vondur. 180 mínútur í sumar hjá þessum liðum markalausar.
Dómarinn - 6,5
Átti lala-frammistöðu. Heilt yfir fínn en nokkrar stórar ákvarðanir sem hægt er að deila um. Hann fær að minnsta kosti ekki like fyrir sína frammistöðu frá mér.



