Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla 2015
Kaplakrikavöllur
11 stiga hiti, skýjað og smá úrkoma með léttri golu. Völlurinn flottur, frábærar fótboltaaðstæður en örugglega soldið kalt í stúkunni.
FH
FH
1 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Steven Lennon (víti) 40'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 1236
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Meistaralykt í Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Vítaspyrna Steven Lennon skildi liðin að í lokin í fjörugum leik en þó má líka færa rök fyrir einbeittum varnarleik heimamanna sem því sem landaði sigri gegn sprækum Víkingum sem gerðu alveg tilkall til stigs.

Bestu leikmenn

1. Kassim Doumbia

Liðsheildarsigur hjá FH en Kassim var frábær í hjarta FH varnarinnar sem þurfti að hafa fyrir hlutunum í kvöld. Hefur átt misjafna leiki í sumar en var í lykilhlutverki í þessum sigri.

2. Thomas Nielsen

Þessi danski strákur fékk mikla gagnrýni í vor en hefur bætt sinn leik verulega.

Tvær magnaðar markvörslur í síðari hálfleik skiptu öllu máli fyrir Víkinga að haldast inni í leiknum.

Atvikið

Undir lok fyrri hálfleiks meiðist Tufegdzic og er skipað af velli.

Dómarinn gefur honum leyfi til að koma inná svæði þar sem Róbert markmaður hafði hent á bakvörð en Tufegdzic kemst inn í þá sendingu en varnarmaður pikkar af honum boltann og til Róberts sem tekur hann upp og dæmd er óbein aukaspyrna.

Allt varð tjúllað og mikill hasar lifði þær þrjár mínútur þar til flautað var til hálfleiks. Ef upp úr þessu hefði komið mark hefði fjörið orðið enn meira!

Hvað þýða úrslitin?

FH eru í dauðafæri til að verða Íslandsmeistarar.

Þurfa í raun að klúðra þremur leikjum af síðustu fjórum til að það verði ekki, sex stigum ofan við Blika og sjö yfir KR.

Víkingar þurfa enn að ná í þrjú stig til að geta sagst öruggir í deildinni.

Vondur dagur

Rolf Toft hefur verið besti leikmaður Víkinga í sumar en í dag fékk hann tvö dauðafæri sem hann nýtti illa.

Sefur illa í nótt.

Dómarinn - 7,5

Hélt flottri línu lengst af leiknum en í lok hans fóru flautin að verða reglulegri og fyrir minni brot.

Allar stóru ákvarðanirnar í leiknum klárlega réttar, hvort sem var víti eða spjöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.