SKÝRSLAN: KR-ingar kvöddu titilinn á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
Áhugaleysi KR var eiginlega ólýsanlegt í þessum leik, það var enginn leikmaður í röndóttri treyju sem hefði fórnað lífi og limum fyrir þrjú stig hér í dag. Almarr kom aftur á móti inná með miklum krafti og skoraði jöfnunarmarkið.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Ingi Halldórsson
Maður sem skorar eitt mark og leggur upp annað í Frostaskjólinu er að sjálfsögðu maður leiksins, var duglegur að nýta sér hraðann sinn og var stanslaust að koma inn á völlinn til að fá stungusendingar.
2. Almarr Ormarsson
KR geta þakkað honum fyrir stig úr þessum leik, kemur með líf í leik KR-inga og var sífellt ógnandi.
Atvikið
Varsla Ingvars Þórs Kale frá Hólmberti sem skallaði boltann innan úr markteig í fjærhornið þar sem Kale var mættur á ótrúlegan hátt.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar geta farið að kveðja titilinn hvað og hverju, það þarf ansi mikið að gerast til að þeir nái Fimleikafélaginu eða Blikum.
Vondur dagur
Danskt tríó KR. Án þess að hafa mörg orð um það þá voru Sören, Jacob og Rasmus slökustu leikmenn KR í dag. Rasmus réði engan veginn við Patrick og hvað þá Kristinn Inga. Óskar Örn sást sömuleiðis afskaplega lítið.
Dómarinn - 9
Frábær leikur heilt yfir hjá tríóinu, allar stærstu ákvarðanirnar réttar og lítið út á þeirra leik að setja.



