SKÝRSLAN: Framarar felldu Fjarðabyggð
Hvað réði úrslitum?
Super-sub Ivan Parlov. Kemur inn, skorar tvö mörk og klárar leikinn. Gestirnir geta sjálfum sér um kennt en þeir fengu nokkur tækifæri til að bæta við öðru markinu, allt kom fyrir ekki og Fram kláraði leikinn.
Bestu leikmenn
1. Ivan Parlov
Kemur af bekknum, skorar tvö mörk og ræður úrslitum. Ekki slæmt dagsverk á rúmum hálftíma.
2. Ivan Bubalo
Bubalo lagði upp bæði mörk Fram í dag og var varnarmönnum Fjarðabyggðar erfiður viðureignar.
Atvikið
Sigurmark Ivan Parlov í blálokin tryggði dramatískan sigur Fram og felldi Fjarðarbyggð í leiðinni.
Hvað þýða úrslitin?
Fjarðabyggð er fallið úr Inkasso-deildinni. Þeir hafa ekki unnið í tíu leikjum í röð og augljóslega er það ekki líklegt til árangurs. Framarar eru í 5. sæti eftir slitrótt gengi í sumar og geta þeir nú farið að horfa til næsta árs.
Vondur dagur
Fjarðabyggð - Félagið féll í dag og er það heldur betur vondur dagur.
Dómarinn - 5
Sigurður Óli Þórleifsson átti rólegan dag en klikkaði mögulega á stóru atriði í marki gestanna. Dimitrov Zelkjo virtist vera kolrangstæður þegar hann setti boltann í netið.



