Fotbolti.net
@saevarolafsSævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Ásvellir
Napurt - völlurinn rakur og smávægilegur hliðarvindur.
Haukar
Haukar
1 - 1
Selfoss
Selfoss
0 - 160' Svavar Berg Jóhannsson Elton Renato Livramento Barros 90'1 - 1
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Kuldaboli beit Selfyssinga í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Jöfnunarmark Elton Renato Livramento Barros á þriðju eða fjórðu mínútu uppbótartíma. Það var fátt sem benti til þess að Haukar myndu ná að jafna þegar Alexander kom boltanum á Livramento.

Bestu leikmenn

1. Andrew Pew

Andy Pew var mjög þéttur í þessum leik og strönduðu margar sóknarlotur Hauka á honum. Skilaði boltanum vel frá sér út í gegnum leikinn

2. Alexander Freyr Sindrason

Flott frammistaða hjá fyrirliðanum sem var þéttur í hjarta varnarinnar. Sérstaklega vóg hans frammistaða í fyrri hálfleiknum þar sem hann vann ótal skallabolta í góðum fyrri hálfleik Haukaliðsins.

Atvikið

Tvífótatæking Arnar Aðalgeirssonar á Inga Rafni Ingibergssyni. Atvikið átti sér stað beint fyrir framan fjölmiðlaaðstöðuna þar sem Árnar kastaði sér gegn Inga Rafni og tók boltann en óhjákvæmilega Inga líka. Hættulegur leikur og verðskuldaði rautt spjald. Arnar var líka tekinn af velli innan við mínútu síðar

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Selfyssingar komast ekki upp fyrir Hauka. Jafnframt þýða þessi úrslit að Selfyssingar eru sigurlausir í sjö leikum eða frá því í byrjun ágúst.

Vondur dagur

Richard Sæþór var ekki mikill þátttakandi í leiknum þær 45 mínútur sem hann var inn á vellinum. Var tekinn útaf í hálfleik fyrir frískan Inga Rafn Ingibergsson Gunnar Gunnarsson miðvörður Hauka var í krummafót í þessum leik. Boltinn og hann voru ekki að finna sameiginlegan flöt í lífinu og frammistaðan eftir því.

Dómarinn - 7

Dæmdi leikinn ágætlega í heild sinni. Það voru fá stór atriði í þessum leik en ég hefði viljað sjá Aðalbjörn lyfta rauðu spjaldi á tvífótatæklingu Arnars. Að öðru leyti var tríóið með á nótunum og með sitt á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.