Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Nettóvöllurinn
Keflavík
Keflavík
2 - 2
Þór
Þór
Hörður Sveinsson 20'1 - 0Hörður Sveinsson 29'2 - 02 - 164' Gunnar Örvar Stefánsson 2 - 268' Gunnar Örvar Stefánsson
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Jafntefli í slagnum um 3. sætið

Hvað réði úrslitum?

Þórsarar gáfust ekki upp þó þeir hafi lent tveimur mörkum undir í fyrri hálfleik og komu sterkir til baka í seinni hálfleiknum og voru betra liðið á vellinum. Það skilaði þeim stigi í dag.

Bestu leikmenn

1. Gunnar Örvar Stefánsson, Þór

Öflugur í framlínunni og skoraði tvö góð mörk. Átti nokkur færi til viðbótar til að skora þriðja markið.

2. Hörður Sveinsson, Keflavík

Það er alltaf von á mörkum frá Herði og eins og vaninn er á haustin komu tvö frá honum í dag og hann skapaði sér færi til að bæta enn meira við þó það hafi ekki tekist.

Atvikið

Þór komst inn í leikinn eftir klukkutíma leik þegar Gunnar Örvar kom þeim í 2-1. Það var þó nokkuð skondið að andartaki áður var Gunnar Örvar í dauðafæri en hitti ekki boltann, boltinn lá því dauður fyrir framan hann og hann reyndi aftur og smellihitti þá og skoraði. Þriðja markið skiptir oft sköpum í leikjum segja þeir.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík hefði þurft að vinna til að tryggja sér 3. sætið í deildinni en þeir eru enn í bílstjórasætinu hvað það varðar en ef þeim mistekst gegn Leikni í lokaleiknum getur Þór hirt það. Ekki að 3. sæti í Inkasso deildinni gefi neitt meira en 9. sæti einu sinni en það er þó betra enda sem efst.

Vondur dagur

Axel Kári Vignisson vinstri bakvörður Keflavíkur átti í vandræðum með að verjast Þórsurum í dag og bæði mörkin komu í gegnum kantinn sem hann átti að verja.

Dómarinn - 8

Stóð sig vel í leiknum í dag og ekkert út á hann að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.