Fotbolti.net
@fotboltinetÞórir Steinn Valgeirsson
Þórir Steinn Valgeirsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Fjarðabyggðarhöllin
Leiknir F.
Leiknir F.
1 - 0
Leiknir R.
Leiknir R.
Kristófer Páll Viðarsson 53'1 - 0
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: Ennþá von fyrir Leikni F.

Hvað réði úrslitum?

Varnarleikur og markvörður Leiknis Fáskrúðsfjarðar. Vörn þeirra þurfti að þola gríðarlega mikið í leiknum en Leiknir R. var í sókn nánast allan leikinn. Þeir einskorðuð færi Leiknis R. nánast eingöngu við hálffæri en þegar það klikkaði var Adrian mættur til að verja.

Bestu leikmenn

1. Adrian Murcia Rodriguez

Var alltaf til staðar þegar liðið hans þurfti á honum að halda. Hann hélt Leikni F. í leiknum í fyrri hálfleik og varði nokkrum sinnum glæsilega frá sóknarmönnum Leiknis R. í seinni hálfleik til að halda liði sínu í forrystu.

2. Kristófer Páll Viðarsson

Kannski ekki hans besti leikur en hann skoraði glæsilegt mark sem tryggði liði hans sigur og gefur þeim veika von um að halda sér í deildinni.

Atvikið

Möguleg vítspyrna fyrir Leikni R. Í uppbótartíma fékk Leiknir R aukaspyrnu nálægt vítateig Leiknis F. Spyrnan virtist fara í höndina á Ignacio Gaona, leikmanni Leiknis F., og Reykvíkingarnir heimtuðu vítaspyrnu. Guðmundur Ársæll dæmdi hins vegar ekkert.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknir F. heldur enn í veika von um að geta bjargað sér. Til þess þurfa þeir þó að vinna HK stórt í síðustu umferð og vona að Huginn tapi einnig stórt. Úrslit dagsins þýða að Leiknir R. fellur niður í 7. sæti deildarinnar. Með sigri í næsta leik gegn Keflavík geta þeir þó unnið sig aftur upp í 5. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Jesus Suarez - Hann var kannski í sigurliðinu í dag en frammistaða Suarez var ekkert sérstök. Hann var ekki mjög hreyfanlegur á miðjunni og leikmenn Leiknis R. áttu ekki í miklum vandræðum með að komast framhjá honum. Sóknarlega var Suarez ekki mikið betri. Hann hékk of lengi á boltanum í stað þess að koma honum á samherja og það fóru nokkrar sóknir út í sandinn við það.

Dómarinn - 6

Ekki besti leikur Guðmunds. Hann leyfði leiknum ekki að fljóta og var allt of flautuglaður. Stöðvaði sókn hjá Fáskrúðsfirðingum í fyrri hálfleik þegar þeir voru að sleppa í gegn í stað þess að beita hagnaði. Reykvíkingar verða einnig ósáttir við það að hann dæmdi ekki víti á lokamínútum leiksins þegar boltinn virtist fara í höndina á Ignacio Gaona.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.