Fotbolti.net
@baldvinkari_Baldvin Kári Magnússon
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Akureyrarvöllur
KA
KA
2 - 1
Grindavík
Grindavík
0 - 143' Andri Rúnar BjarnasonÁsgeir Sigurgeirsson 69'1 - 1Hallgrímur Mar Steingrímsson (víti) 72'2 - 1Aleksandar Trninic 90'
Dómari: Hjalti Þór Halldórsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: KA-menn tryggðu sér bikar gegn Grindavík

Hvað réði úrslitum?

KA-menn voru mun betri aðilinn í leiknum. Það gekk hinsvegar illa að nýta færin og þeir voru 1-0 undir í háflleik. Í seinni hálfleik gekk betur að nýta færin og KA-menn náðu í sigurinn sem þeir þurftu.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur spilað mjög vel í dag og var sífellt ógnandi. Hefur spilað betur og betur eftir því sem liðið hefur á mótið. Skoraði úr vítaspyrnunni af miklu öryggi.

2. Hrannar Björn Steingrímsson

Hrannar spilaði vel í dag líkt og bróðir sinn. Var nokkuð solid varnarlega og öflugur sóknarlega. Lagði upp fyrsta mark KA-manna með frábærri sendingu á Ásgeir.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn í seinni hálfleik. Hallgrímur skoraði annað mark KA úr víti sem hann fiskaði sjálfur. Vítaspyrnu dómurinn virtist einfaldlega vera rangur þar sem Björn virtist ná til boltans. Annar leikurinn í röð þar sem Grindvíkingar fá á sig umdeilt víti.

Hvað þýða úrslitin?

KA-menn tryggja sér með sigrinum deildarmeistaratitilinn í Inkasso deildinni árið 2016. Grindvíkingar enda hinsvegar í öðru sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Dómarateymið. Sjá betur í liðnum dómarinn. Undarleg ákvörðun hjá KSÍ að vera ekki með stærri dómara á þessum leik þar sem mikið var undir.

Dómarinn - 4

Dómarateymið virtist ekki ráða við þennan leik. Mikið af mistökum og óöryggi í dómgæslunni. Tvö stór atriði voru röng. Eitt á hvort lið. Rodrigo Mateo átti klárlega að fá sitt annað gula spjald í seinni hálfleik þegar hann tók Hallgrím Mar niður. Einnig var vítaspyrnudómurinn rangur þar sem Björn Bryde virtist fara í boltann. Svona má ekki gerast á eins stórum leik og þessum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.