Fotbolti.net
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi-deild karla
Origo völlurinn
Valur
Valur
3 - 1
KA
KA
Kristinn Freyr Sigurðsson 4'1 - 01 - 134' Aleksandar TrninicGuðjón Pétur Lýðsson 45'2 - 1Ólafur Karl Finsen 90'3 - 1
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Valsmenn svífa vængjum þöndum í toppsætið

Hvað réði úrslitum?

Færanýting Valsmanna var það sem gerði útslagið í dag. Þeir voru ekkert endilega betra liðið en náðu að nýta sér þau færu sem þeir fengu á meðan KA gekk illa að skapa sér nógu markviss marktækifæri. Sanngjörn niðurstaða hefði kannski verið jafntefli en það er ekki spurt að því.

Bestu leikmenn

1. Guðjón Pétur Lýðsson

Skorar geggjað mark og á stoðsendingu. Það er varla hægt að biðja um það betra.

2. Arnar Sveinn Geirsson

Stóð fyrir áætlunarferðum upp kantinn öðru hverju og kom með fína krossa og sendingar.

Atvikið

Mark GPL. Skot af 35 metra færi, niður við stöngina. Geggjað stöff.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn eru komnir á þann stað sem þeim líður best, á toppinn. Í það minnsta þangað til á morgun en þá gætu FH náð toppsætinu af þeim með því að sigra og skora nokkur mörk. En er á meðan er. KA er komið niður í 10 sæti deildarinnar. Þeir þurfa að fara að tengja sigurleiki ef þeir ætla ekki að sogast niður í fallbaráttuna.

Vondur dagur

Enginn sérstakur sem átti eitthvað afburða vondan dag. En Cristian Martinez hefði hugsanlega átt að gera betur í öðru marki Vals.

Dómarinn - 7

Dómarinn dæmdi þennan leik vel. Það var harka í leiknum og hann var hraður og lét dómarinn hann fljóta nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.