Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-deild karla
Grindavíkurvöllur
Smá gola rigning og vel blautur völlur
Grindavík
Grindavík
0 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 162' Sveinn Aron Guðjohnsen 0 - 270' Gísli Eyjólfsson87' Arnþór Ari Atlason
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Blikar skelltu toppliðinu

Hvað réði úrslitum?

Grimmd og gæði. Blikar stóðu heimamönnum framar í öllu því sem fram fór á vellinum í dag. Stýrðu flæði leiksins með mikilli baráttu og sýndu gæði sín fram á við með tveimur mjög góðum mörkum.

Bestu leikmenn

1. Sveinn Aron Guðjohnsen

Skoraði frábært mark og var sífellt að atast í varnarmönnum Grindavíkur. Duglegur að finna sér svæði og hefði við betri aðstæður líklega skorað fleiri mörk.

2. Gísli Eyjólfsson

Var öflugur í holunni og náði oft að koma sér í góðar stöður á vellinum og skapa hættu. Skoraði líka gott mark.

Atvikið

Seinna gula spjaldið á Arnþór Ara er mér hulinn ráðgáta. Lætur samkvæmt heimildum fréttaritara orðin ,,ert þú að grínast\" falla og uppskar fyrir það annað gult spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar skella sér upp að hlið Grindavíkur með 14 stig. Pakkinn þéttist enn þarna í kringum toppinn og það er vonandi að mótið verði svona þétt í töflunni allt til loka.

Vondur dagur

Sam Hewson sást sama og ekkert í dag. Gekk erfiðlega að tengja við samherja með sendingum og átt bara hreint út sagt afar dapran leik.

Dómarinn - 5

Í heildina ekkert illa dæmdur leikur hjá Sigurði en gat haldið betri stjórn á leiknum í seinni hálfleik. Atvikið með Arnþór dregur hann einnig niður.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.