Fotbolti.net
Ester Ósk Árnadóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Inkasso deildin - 1. deild karla
Þórsvöllur
Milt veður - Skýjað, 14 stiga hita og logn
Þór
Þór
2 - 2
HK
HK
0 - 114' Bjarni Gunnarsson Alvaro Montejo Calleja 42'1 - 1Jónas Björgvin Sigurbergsson 74'2 - 12 - 280' Brynjar Jónasson Sveinn Elías Jónsson 84'Ármann Pétur Ævarsson (misnotað víti) 85'
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Tvö víti og rautt á Akureyri í hörkuslag

Hvað réði úrslitum?

Það er hægt að taka svo mikið út úr þessum leik. Það var ekkert eitt atriði sem réð úrslitum hér í dag. Tvö góð lið mætust í miklum baráttu leik, enginn gaf afslátt og enginn gafst upp sem skilaði þessu í 2-2 jafntefli.

Bestu leikmenn

1. Bjarki Þór Viðarson

Átti frábæran leik fyrir Þór. Ótrúlega duglegur, vinnusamur og með gullfót. Frábærar sendingar sem hann átti fyrir mark HK sem sköpuðu nánast undartekningarlaust hættu. Virtist aldrei verða þreyttur á að koma sér í svæði bak við bakvörðin og koma boltanum fyrir.

2. Jónas Björgvin Sigurbergsson

Hann átti frábæra innkomu í Þórsliðið og gaf liðinu extra kraft. Átti svo frábæran sprett upp völlinn sem endaði með góðu marki.

Atvikið

Vítið sem Arnar Freyr ver frá Ármanni Pétri. Mark frá Ármanni Pétri á þeirri stundu hefði sett Þór í frábæra stöðu fyrir síðustu mínúturnar og líklega skilað þeim sigri.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin skipta með sér stigum, sem hljóta að vera vonbrigði fyrir Þórsara miða við hvernig leikurinn spilaðist. HK menn stinga þessu stigi í vasann og fara líklega sáttir með það suður.
HK fer upp í 14 stig í öðru sætinu. Þór lyftir sér hins vegar upp í þriðja sætið með 11 stig.

Vondur dagur

Leifur Andri í hægri bakverðinum hjá HK réð lítið við Guðna á kantinum. Ekki batnaði það í öll þau skipti sem Bjarki fór í overlappið, hef ekki tölu á sendingunum sem rötuðu inn í teig af hægri kantinum og sköpuðu hættu. Leifi til varnar var lítið um hjálp frá öðrum í vörn HK þegar þeir komu tveir á hann.

Dómarinn - 6

Þetta var einstaklega erfiður leikur að dæma. Mikill harka í mönnum, mikið um brot og svolítið um pústa á milli manna.
Egill Arnar átti ekki sinn besta dag en mér fannst hann samt heldur ekki gera þetta illa, það var mikið um vafaatriði í leiknum. Línuverðirnir virtust líka vera óöruggir og það var ekki að hjálpa Agli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.