Fotbolti.net
Sævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Leiknisvöllur
Rigning og nokkur gustur í átt að Breiðholtslauginni
Leiknir R.
Leiknir R.
3 - 1
Magni
Magni
Sólon Breki Leifsson 12'1 - 0Sólon Breki Leifsson 27'2 - 0Sævar Atli Magnússon 30'3 - 03 - 155' Agnar Darri Sverrisson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Leiknismenn kláruðu sex stiga slaginn í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Snarpur leikkafli hjá Leiknismönnum í fyrri hálfleiki þar sem þeir nýttu sér til fullnustu hraðar sóknir með Sólon Breka í farabroddi. Skilaði þessi leikkafli heimamönnum þremur góðum mörkum og eftir sátu gestirnir vankaðir og í ansi djúpri gryfju.

Bestu leikmenn

1. Sólon Breki Leifsson

Síógnandi í leiknum og olli varnarmönnum Magna stanslausum höfuðverk. Skoraði gott mark og átti svo lykilsendingu í þriðja marki Leiknismanna.

2. Sævar Atli Magnússon

Mark og stoðsending í dag hjá Sævar sem var jafnframt iðinn og vann óeigingjarna vinnu fyrir sína menn. Hefði mátt gera betur í tveimur færum en framlagið taldi þegar upp var staðið.

Atvikið

Stórkostleg tækling Bjarka Aðalsteins á 5 mínútu. Gunnar Örvar var nánast inni í marki Leiknismanna þegar Bjarki henti sér í einhverja dramatískustu tæklingu sem sést hefur á Leiknisvelli og komst fyrir skot Gunnars sem af þessu færi hefði sennilega hafnað í markinu. Stórt atvik og hefði verið risa EF og HEFÐI ef Magnamenn hefðu tekið forystuna þarna.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Leiknismenn jafna Njarðvíkinga að stigum í 9.sæti en eru með lakari markatölu. Aukinheldur blanda Leiknismenn sér í þéttan miðjupakka sem ætti að gefa liðinu tækifæri á að líta upp töfluna. Magnamenn fara hinsvegar særðir norður í Grenivík, áfram í botnsæti deildarinnar.

Vondur dagur

Davíð Rúnar Birgisson virkaði hreint út sagt ekki í líkamlegu ásigkomulagi til að standa vaktina í leik á þungum velli sem þessum. Skilaði boltanum illa frá sér á stundum, seinn á fótunum og var einfaldlega í tómu basli og brasi langtímunum saman í dag.

Dómarinn - 6

Elías Ingi dæmdi þetta ágætlega. Ekki flekklaus frammistaða og þá aðallega leikkafli í síðari hálfleik þar sem Elías virtist aðeins missa einbeitinguna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.