Fotbolti.net
Kristófer Jónsson
Kristófer Jónsson
Pepsi-deild karla
Víkingsvöllur
Völlurinn er eins og hann er. Skýjað og rigning.
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 1
ÍBV
ÍBV
Nikolaj Andreas Hansen 23'1 - 01 - 150' Gunnar Heiðar Þorvaldsson Nikolaj Andreas Hansen 54'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: Nikolaj Hansen sá um ÍBV

Hvað réði úrslitum?

Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk fyrir Víking í dag sem að dugði til sigurs. Leikurinn hefði getað dottið báðum megin svosem og á tímapunkti var ÍBV líklegri aðilinn en varnarlína Víkinga hélt vel og hleypti fáum færum á sig.

Bestu leikmenn

1. Nikolaj Hansen

Skoraði tvö mörk fyrir Víking í dag sem að uppsker sigur þeirra. Hefði hæglega getað skorað fleiri en getur farið sáttur á koddann í kvöld.

2. Halldór Smári Sigurðsson

Var traustur í vörninni hjá Víking ásamt Sölva Geir sem að er næstur inn hér. Skilaði frá sér góðu dagsverki með góðum varnarleik.

Atvikið

Í stöðunni 1-1 vildi Gunnar Heiðar fá vítaspyrnu en Helgi Mikael lét leikinn halda áfram. Stuttu síðar skorar Nikolaj Hansen sigurmark Víkinga.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að Víkingur lyftir sér upp í 9.sæti deildarinnar með sigrinum. ÍBV er hins vegar komið í ellefta sæti með stigi minna en Víkingur.

Vondur dagur

Örvar Eggertsson átti ekki góðan leik í dag. Það virtist ekkert ganga upp hjá honum þar til að hann var tekinn útaf snemma í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7

Gunnar Heiðar vildi fá vítaspyrnu í seinni hálfleik sem að Helgi Mikael dæmdi ekki. Sá ekki nákvæmlega hvort að það hafi verið réttur dómur eða ekki. Að öðru leyti dæmdi hann vel í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.