Fotbolti.net
Benjamín Þórðarson
Benjamín Þórðarson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Norðurálsvöllurinn
Flottar aðstæður. Smá vindur á annað markið, sól og hlýtt.
ÍA
ÍA
5 - 0
Magni
Magni
Albert Hafsteinsson 16'1 - 0Bjarki Steinn Bjarkason 19'2 - 0Steinar Þorsteinsson 43'3 - 0Þórður Þorsteinn Þórðarson (víti) 72'4 - 0Albert Hafsteinsson 76'5 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason
Myndir: Ingunn Hallgrímsdóttir

SKÝRSLAN: Skagamenn sýndu styrk sinn gegn botnliðinu

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn eru bara einfaldlega með miklu betra lið og voru miklu betri á öllum sviðum fótboltans í dag. Kannski sem betur fer fyrir Magnamenn þá spiluðu Skagamenn ekki sinn besta leik því þá hefði þetta farið ennþá verr.

Bestu leikmenn

1. Albert Hafsteinsson(ÍA)

Albert var geggjaður í dag. Ekki að sjá að hann sé að stíga upp úr meiðslum. Tvö mörk og stoðsending og var bara frábær á miðjunni.

2. Bjarki Steinn Bjarkason(ÍA)

Bjarki var flottur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Skoraði sitt fyrsta mark og alltaf hætta í kringum hann.

Atvikið

Ég ætla að velja fyrsta markið. Sóknin var stutt en frábærlega útfærð hjá Skagaliðinu og afgreiðslan virkilega hugguleg. Markið braut ísinn og þá var ekki aftur snúið.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn sitja áfram á toppnum og komnir með 20 stig eftir átta leiki. Taplausir og hafa einungis fengið á sig þrjú mörk en skorað sextán. Magnamenn eru hins vegar í ekkert sérstökum málum á botni deildarinnar með 3 stig. Eru núna búnir að tapa fimm leikjum í röð og fá sig 22 mörk í 8 leikjum og það er bara ávísun á eitt, fall.

Vondur dagur

Magnaliðið í heild sinni fær þetta skuldlaust. Voru alveg arfaslakir og eins og Páll Viðar þjálfari Magna sagði svo réttilega í viðtali eftir leik að þá þýðir ekkert að mæta á Skagann og standa ekki í lappirnar. Voru undir á öllum sviðum fótboltans í allt kvöld og áttu aldrei break.

Dómarinn - 8

Virkilega vel dæmdur leikur hjá Þorvaldi. Ekkert sem er hægt að setja útá hjá þeim félögum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.