SKÝRSLAN: Stórbrotið mark kom Val aftur í toppsætið
Hvað réði úrslitum?
Gæði Valsmanna voru einfaldlega meiri í kvöld og FH áttu í miklum vandræðum með að skapa sér færi. Valsmenn áttu miðjuna í þessum leik og áttu svo sannarlega sigurinn skilið.
Bestu leikmenn
1. Patrick Pedersen
Patrick var síógnandi, skoraði fyrra markið og bjó til ótal færi með útsjónarsemi sinni.
2. Einar Karl Ingvason
Valsmenn áttu miðjuna í þessum leik og Einar Karl steig varla feilspor og skoraði geggjað mark!
Atvikið
Sigurmark Valsmanna var geggjað. Fyrst frábær skipting frá Sigga yfir á kantinn á Andra sem kom með fyrirgjöf sem Einar hamraði á lofti í netið!
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn hafa unnið 5 leiki í röð í deildinni og eru á toppnum með 20 stig, FH eru hins vegar í 5.sætinu með 16 stig.
Vondur dagur
Brandur Olsen.
Brandur er venjulega hættulegasti maður vallarins en hann sást ekki í dag, átti lélegan leik, engar hættulegar sendingar og hápunktur hans var aukaspyrna rétt framhjá.
Brandur er venjulega hættulegasti maður vallarins en hann sást ekki í dag, átti lélegan leik, engar hættulegar sendingar og hápunktur hans var aukaspyrna rétt framhjá.
Dómarinn - 8
Villi hafði fín tök á leiknum og lítið um augljós mistök. Hefði átt að spjalda Hjört Loga fyrir tæklingu á Andra en heilt yfir flottur leikur hjá honum.



