Fotbolti.net
Ísak Máni Wíum
Ísak Máni Wíum
Inkasso deildin - 1. deild karla
Laugardalsvöllur
Geggjað veður. 11°C og sól
Fram
Fram
1 - 2
ÍR
ÍR
Guðmundur Magnússon 8'1 - 01 - 143' Guðfinnur Þórir Ómarsson 1 - 245' Jón Gísli Ström
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Kærkominn sigur ÍR

Hvað réði úrslitum?

Einbeitingarleysi í vörn Fram undir lok fyrri hálfleiks réði úrslitum í dag. Í staðinn fyrir að fara 1-0 yfir inní hálfleikinn lenda þeir undir og áttu ekki séns í skipulagðan varnarleik gestanna í þeim síðari.

Bestu leikmenn

1. Jón Gísli Ström (ÍR)

Ström vélin að stimpla sig inn í þetta sumar, markið fær hann á silfurfati en vinnusemin og hlaupin sem hann var að taka er eitthvað sem maður er ekki vanur að sjá í hans leik.

2. Helgi Freyr Þorsteinsson (ÍR)

Markmaðurinn hefur komið frábærlega inní liðið eftir að Patrik fór og greip nokkrum sinnum vel inn í í seinni hálfleik auk þess að eiga geggjaða markvörslu sem tryggði sigurinn.

Atvikið

Síðustu 5 mínútur fyrri hálfleiks eru atvikið, vörn Fram var tómu tjóni og ÍR gengu á lagið og skoruðu 2 mörk.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR ná í sinn annan sigur í sumar og jafnan Leikni að stigum í tíunda sætinu. Fram eru að missa af toppliðunum og verða mjög líklega í bullandi miðjumoði í allt sumar.

Vondur dagur

Unnar Steinn þarf að taka þennan á kassann. Saklaust innkast ÍR berst á Unnar sem ætlar að hreinsa en hittir ekki boltann. Jón Gísli nær honum og skorar. Rosalega dýrkeypt mistök.

Dómarinn - 9

Egill svo góður að ég tók varla eftir honum, þannig á að dæma fótbolta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.