SKÝRSLAN: Lið fólksins sótti sigurinn suður með sjó
Hvað réði úrslitum?
Þessi leikur verður seint talinn hafa verið mikið fyrir augað en það sem réði úrslitum í kvöld fyrst og fremst voru líkast til gæði HK-inga til að loka leiknum. Þeir gerðu það sem þurfti og það skilur af.
Bestu leikmenn
1. Birkir Valur Jónsson
Skoraði gott mark og var alltaf mættur í barning. Vörn HK leit hriklaega vel út í kvöld og gáfu Njarðvíkingum enginn færi á sér og Birkir Valur fær heiðurinn fyrir hönd varnarlínu HK manna
2. Ásgeir Marteinsson
Í hvert skipti sem HK ingar ógnuðu var það bókað að Ásgeir var maðurinn á bakvið það, leit mjög vel út í kvöld og í erfiðum leik fyrir sóknarsinnaðan leikmann kom hann vel undan leiknum.
Atvikið
Fyrsta mark HK.
Virðist sem það hafi slegið Njarðvíkingana svolítið út af laginu því þeir bættu svo við öðru stuttu síðar og þar við sat.
Virðist sem það hafi slegið Njarðvíkingana svolítið út af laginu því þeir bættu svo við öðru stuttu síðar og þar við sat.
Hvað þýða úrslitin?
HK fylgir ÍA fast á eftir og stefna með hraði í átt að #Pepsi19, en þeir eru nú með 18 stig í öðru sætinu - tveimur stigum á eftir ÍA.
Njaðvíkingar eru áfram með sín 9 stig í 8.sæti deildarinnar
Njaðvíkingar eru áfram með sín 9 stig í 8.sæti deildarinnar
Vondur dagur
Sóknarleikur Njarðvíkur fær þennan vafasama heiður í kvöld.
Þeir fundu enginn svör við vel skipurlagðri vörn HK og áttu vart færi í leiknum.
Þeir fundu enginn svör við vel skipurlagðri vörn HK og áttu vart færi í leiknum.
Dómarinn - 7
Frekar prúður leikur, ekki mikið um ljót brot eða vafaatriði



