Fotbolti.net
Arnar Helgi Magnússon
Arnar Helgi Magnússon
Pepsi-deild kvenna
JÁVERK-völlurinn
Hlýtt en þungskýjað. Völlurinn blautur.
Selfoss
Selfoss
1 - 1
HK/Víkingur
HK/Víkingur
Unnur Dóra Bergsdóttir 32'1 - 01 - 159' Kader Hancar
Dómari: Gylfi Tryggvason
Áhorfendur: 101

SKÝRSLAN: Selfyssingar og HK/Víkingur spila í Pepsi að ári

Hvað réði úrslitum?

Leikur sem var lítið fyrir augað enda fögnuðu bæði lið vel þegar flautað var til leiksloka enda búnar að tryggja sæti sitt í deildinni. Völlurinn var erfiður í dag og margar feilsendingar sem að litu dagsins ljós. Ekki mikið meira um þennan leik að segja. Bæði lið geta vel við unað.

Bestu leikmenn

1. Grace Rapp

Komið gríðarlega vel inní þetta Selfosslið og í raun verið himnasending fyrir þær. Gríðarlega flott á báðum helmingum vallarins. Góða sendingartækni og er dugleg. Átti stoðsendinguna í marki Selfyssinga.

2. Unnur Dóra Bergsdóttir

Leikmaður sem Selfyssingar hafa beðið svolítið eftir að springi út því að hæfileikarnir eru svo sannarlega til staðar. Unnur Dóra var frábær í sóknarlínu Selfyssinga í dag. Djöflaðist í varnarmönnum gestanna, tímasetti hlaupin sín vel og kom sér í mjög góðar stöður. Skoraði mark Selfyssinga.

Atvikið

Frábært jöfnunarmark Kader Hancar á 59. mínútu leiksins. Mark sem maður sér ekki oft en hún skoraði samsíða endalínunni. Með hægri fæti á hægri kanti þannig að það er ekki eins og hún hafi snúið honum inn. Rosalegt mark!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einungis eitt. Bæði lið tryggja veru sína í Pepsideildinni að ári. Þetta eru þau lið sem komu upp sem nýliðar og ég get ímyndað mér að markmið þeirra fyrir tímabilið hafi verið nákvæmlega þetta. Til hamingju Selfoss og HK/Víkingur.

Vondur dagur

Væri ósanngjarnt að velja einhvern úr þessum liðum. Erfiðar aðstæður, völlurinn blautur og þungur. Set pass á þetta.

Dómarinn - 9,0

Gylfi Tryggvason og hans aðstoðarmenn með gjörsamlega allt á hreinu í dag. Ekkert vandamál á þeim bænum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.