SKÝRSLAN: Njarðvíkingar svo gott sem sloppnir við falldrauginn
Hvað réði úrslitum?
Njarðvíkingar voru hreinlega betri í dag, fengu færin til að klára þetta þæginlegra en Magnamenn fóru ekki að sækja að viti fyrr en eftir að Pawel skorar sjálfsmarkið sem hleypir þeim inn í leikinn.
Bestu leikmenn
1. Arnór Björnsson
Hættulegasti maður Njarðvíkur í dag. Öll færi Njarðvíkur í dag innihéldu Arnór á einhvern hátt.
2. Magnús Þór Magnússon
Klettur í Vörn Njarðvíkur, verið þeirra jafnbesti maður í sumar
Atvikið
Fyrsta mark Njarðvíkur.
Flott hornspyrna sem minnsti maðurinn á vellinum nær að skalla fyrir á fjær en þar reis Arnór Björns upp og skallaði hann öruggt inn
Flott hornspyrna sem minnsti maðurinn á vellinum nær að skalla fyrir á fjær en þar reis Arnór Björns upp og skallaði hann öruggt inn
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvíkingar eru svo gott sem sloppnir við fall en Magnamenn eru í ansi erfiðari stöðu
Vondur dagur
Magnaliðið mætti ekki til leiks eins og lið sem er að berjast fyrir lífi sínu í þessari deild. Þurfti lítið til að pirra þá og það er aldrei vænlegt til árangurs
Dómarinn - 7
Stúkan lét tríóið heyra það duglega en dómararnir voru samkvæmir sjálfum sér og með góð tök á leiknum



