Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi-deild kvenna
Grindavíkurvöllur
Skítaveður rok og haugarigning.
Grindavík
Grindavík
1 - 2
ÍBV
ÍBV
0 - 14' Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir Rio Hardy (víti) 14'1 - 11 - 233' Rut Kristjánsdóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 70

SKÝRSLAN: Fall blasir við Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Klaufaleg mistök og einbeitingarleysi heimakvenna var heimakonum dýrt í dag. Fyrra mark ÍBV skrifast algjörlega á Viv í marki Grindavíkur og það seinna kemur eftir fast leikatriði þar sem dekkning klikkar. Verða að gera mun betur í síðustu tveimur leikjum sínum ef þær á annað borð ætla sér að gera atlögu að því að halda sér uppi.

Bestu leikmenn

1. Cloé Lacasse

Cloé var mjög góð í dag þótt hún hefði mátt nýta færin sín. Fékk nokkur dauðafæri sem hún fór illa með en var samt potturinn og pannann í spili gestanna.

2. Viviane Holzel Domingues

Hún gerir klaufaleg mistök í fyrra marki ÍBV en varði oft úr dauðafærum þar af allavega þrisvar 1 á 1 og var helsta ástæða þess að tapið var ekki stærra.

Atvikið

Eftir um 40 mínútna leik finnst mér að Shameeka Fishley hafi átt að fá sitt seinna gula og þar með rautt er hún sparkaði til Lindu Eshun þegar boltinn var víðsfjarri. Menn í blaðamannastúkunni voru einróma um að hún hefði verið stálheppin að dómarinn hafi ekki gripið til aðgerða.

Hvað þýða úrslitin?

Staðan er slæm fyrir Grindavík. 3 stigum á eftir KR með talsvert lakari markatölu og aðeins 2 leikir ertir. Eiga þó eftir innbyrðisleik gegn KR en verða jafnframt að treysta á að þær röndóttu misstígi sig.

Vondur dagur

Ray þjálfari Grindavíkur fær þennan vafasama heiður í dag. Sumarið hefur verið erfitt fyrir hans stúlkur en þegar öllu er á botnin hvolft benda flestir á þjálfarann þegar finna á sökudólg. Þarf að þjappa sínum stelpum saman og sækja 6 stig í síðustu tveimur leikjum liðsins.

Dómarinn - 5

Ekkert skelfilegur en alls ekki góður heldur, átti sín móment eins og í vítadómnum sem var réttur að mínu mati en átti marga furðulega dóma á móti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.