SKÝRSLAN: Rauð spjöld, þrjú mörk og bjart yfir Blikum
Hvað réði úrslitum?
Leikskipulag Blika og framkvæmd leikmanna á því var til fyrirmyndar. Þær leyfðu Þór/KA að vera með boltann en spiluðu þétta vörn og voru tilbúnar að mæta þeim áður en þær náðu að skapa sínar eftirlætis leikstöður. Sóttu svo hratt í svæðin sem gestirnir skildu eftir sig og nýttu færin betur en andstæðingarnir.
Bestu leikmenn
1. Alexandra Jóhannsdóttir
Sú er að eiga gott sumar og fer vaxandi með hverjum leik. Kórónaði góðan leik með tveimur mikilvægum mörkum sem gerðu út um leikinn fyrir Blika.
2. Hildur Antonsdóttir
Hér gera þónokkrir Blikar tilkall en Hildur fær titilinn. Var hrikalega góð á miðjunni hjá Blikum. Algjört miðjubuff sem er að synca hrikalega vel með hinni varnarsinnuðu Fjollu sem einnig á skilið hrós fyrir sitt framlag í dag.
Atvikið
Víti eða ekki víti? Í stöðunni 1-0 fyrir Blika vildi Þór/KA fá vítaspyrnu. Boltinn fór klárlega í höndina á Guðrúnu Arnardóttur þegar Hulda Ósk reyndi að komast framhjá henni. Bríet dómari var ofan í þessu en dæmdi ekkert.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar eru í hrikalega góðri stöðu á toppnum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Eru með fimm stiga forskot á Þór/KA og geta því orðið meistarar með sigri á Selfoss í næsta leik.
Vondur dagur
Hér er af ýmsu að taka. Alltof margir leikmenn Þórs/KA misstu hausinn við mótlætið er leið á leikinn. Aðstoðarþjálfarinn Andri Hjörvar lét reka sig upp í stúku í annað skiptið í sumar eftir að hafa mótmælt því þegar Þór/KA fékk ekki dæmda vítaspyrnu. Varnarjaxlinn Bianca Sierra fór sömu leið á lokamínútunum þegar hún fékk sitt annað gula spjald eftir heimskuleg viðbrögð við því þegar Blikar fengu dæmt innkast sem hún vildi meina að Þór/KA ætti.
Dómarinn - 5
Spjöldin voru öll rétt en Þór/KA átti að öllum líkindum að fá vítaspyrnu og það er dýrt. Það komu einnig upp atvik í leiknum þar sem mér fannst að Bríet hefði getað beitt hagnaði og leyft leiknum að fljóta.



