Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Varmárvöllur - gervigras
Afturelding
Afturelding
1 - 2
Haukar
Haukar
0 - 15' Þórður Jón Jóhannesson 0 - 237' Arnar Aðalgeirsson Djordje Panic 70'1 - 2
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson

SKÝRSLAN: Fyrsti deildarsigurinn kom í Mosó

Hvað réði úrslitum?

Haukar skoruðu tvö, Afturelding eitt.
Heilt yfir þokkalega dapur leikur.

Bestu leikmenn

1. Daníel Snorri Guðlaugsson (Haukar)

Daníel var mjög solid allan leikinn, hélt Jason Daða í skefjum og lagði upp annað mark Hauka.

2. Alexander Aron Davorsson (Afturelding)

Alli var hrikalega drjúgur á miðjunni, var einn að berjast á móti 11 í frekar daufu Aftureldingaliði, vann hvern skallaboltann á fætur öðrum, vann návígin sín á miðjunni og var að skapa allt sem Afturelding gerði í þessum leik.

Atvikið

Róbert er togaður niður innan teigs undir lok leiks en er dæmdur brotlegur, hann var alveg trylltur yfir því að fá ekki víti, ég er ekki viss þar sem ég sá ekki hvort hann braut af sér áður en það var brotið á honum.

Hvað þýða úrslitin?

Haukar koma sér uppfyrir Aftureldingu og senda þá í fallsætið, en bæði lið eru í hörku fallbaráttu eins og deildin er um þessar mundir.

Vondur dagur

Arnór Gauti Jónsson átti í smá vandræðum með fyrirgjafir Hauka sem skoruðu tvö mörk skallamörk af varnarsvæði Gauta, verð því miður að stimpla þetta á þennan annars efnilega og metnaðarfulla dreng.

Dómarinn - 6

Heilt yfir fínn í leiknum en sparsamur á allavega tvö pjúra spjöld, svo hefði hann alveg mátt vera harðari við Haukana undir restina þegar þeir voru að drepa leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.