SKÝRSLAN: Flautumark í Safamýrinni
Hvað réði úrslitum?
Fyrir Fram þá voru það færin sem Helgi Guðjónsson klúðraði, sá hefði átt að setja nokkur mörk í kvöld.
Fyrir Gróttu þá var það gríðarlegur kraftur á lokakaflanum og vafaatriði sem féllu með þeim. Svo má alltaf einangra sigurmarkið í svona.
Fyrir Gróttu þá var það gríðarlegur kraftur á lokakaflanum og vafaatriði sem féllu með þeim. Svo má alltaf einangra sigurmarkið í svona.
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðarson (Grótta)
Sprækasti leikmaður Gróttu í fyrri hálfleið og reif sig upp úr næst besta sætinu upp í það besta með sigurmarkinu.
2. Fred/Ólafur Íshólm (Fram)
Fred skoraði bæði mörk Fram og var gríðarlega líflegur þann tíma sem hann var inná. Óli var einstaklega öruggur í markinu og greip flest allt sem kom nálægt honum. Flottur leikur hjá þeim félögum.
Atvikið
Sigurmarkið, ekki spurning. Risa móment fyrir sumarið hjá Gróttu.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta fer upp að hlið Fram með 11 stig.
Vondur dagur
Helgi Guðjónsson átti ekki sinn besta dag. Hefði hæglega geta verið búinn að gera út um leikinn áður en Grótta skipti um gír í seinni hálfleik. Klúðraði tveimur færum þar sem erfiðara var að klúðra en skora og átti önnur góð færi. Sýndi þó gríðarleg gæði í aðdraganda færanna og alveg ljóst að hann verður lykilmaður í sóknum Fram í sumar.
Dómarinn - 5
Það var mikill hiti gagnvart dómurunum í kvöld. Framarar voru ekki sáttir með dóma í tveimur mörkum. Ég er ekki frá því að þeir hafi eitthvað til síns máls í því.



