SKÝRSLAN: Dramatík og skandalar í Grafarvoginum
Hvað réði úrslitum?
Mörkin hjá Albert og Davíð gerðu það að verkum að leikurinn endaði 1-1.
Bestu leikmenn
1. Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík)
Rúnar kemur inná og leikurinn breytist, hann á reyndar að mínu mati að fá rautt spjald en í því momenti býr hann til æsing sem fer í hausinn á Fjölnismönnum og leggur svo upp sigurmarkið með frábærri spyrnu frá miðju.
2. Ingibergur Kort Sigurðsson (Fjölnir)
Ingi var virkilega sprækur og hættulegur í dag, reyndi stundum aðeins of mikið en olli alltaf vandræðum.
Atvikið
Tæklingin hjá Rúnari Þór á Inga Kort var hreint út sagt ógeðsleg, hann kemur af 120% krafti inn í einvígið með einbeittan brotavilja og er aldrei nálægt boltanum og jarðar Inga. Allt varð vitlaust en Rúnar leggur svo upp sigurmarkið stuttu seinna.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir heldur toppsætinu en Keflavík heldur sínu striki í 6. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Arnór Breki brýtur mjög klaufalega af sér sem var algjör óþarfi þegar maðurinn er við miðju og snýr baki að eigin marki og uppúr því kemur jöfnunarmarkið. Svona grundvallarmistök eru dýr þegar upp er staðið.
Dómarinn - 4,4
Þessi einkunn er fall í menntaskóla... Að Frans fái ekki seinna gula í fyrri hálfleik er undarlegt, en að Rúnar skuli ekki fá beint rautt er hreinn og beinn skandall. Tvö mjög stór atriði!



