SKÝRSLAN: Hádramatískur derby leikur á Grenivík
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar voru miklu meira með boltann í leiknum og sóttu og sóttu en lentu í hvert skipti á múrvegg. Varnarleikur Magna í dag var til hreinnar fyrirmyndar og ganga bæði lið svekkt frá borði með þetta eina stig.
Bestu leikmenn
1. Sveinn Óli Birgisson
Fyrirliðinn steig varla feilspor í dag. Grimmur í alla bolta og stóð vaktina feykivel. Var byrjaður að haltra í fyrri hálfleik en klárar leikinn. Geggjaður í dag.
2. Ívar Sigurbjörnsson
Eins og Sveinn Óli fór Ívar að fullu í alla bolta. Rennur til þegar að Þórsarar skora markið en það er ekki nóg til að draga hann niður. Frábær leikur hjá Íbba.
Atvikið
Jöfnunarmark Þórs sem að kom á 90.mínútu. Það virtist allt stefna í sigur Magnamanna hér undir restina en góð fyrirgjöf frá Bjarka endaði beint á hjálminum hans Jóhanns Helga sem að stangaði hann í netið og tryggði Þór eitt stig.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar eru áfram í þriðja sæti í þessari gríðarlegu spennandi toppbaráttu. Magnamenn eru áfram neðstir og eru þrjú stig og ansi mörg mörk í öruggt sæti.
Vondur dagur
Aron Elí Sævarsson fær á sig mjög klaufalegt víti og verður að taka þetta á sig.
Dómarinn - 7
Þetta er rosalega flókin spurning. Elías dæmdi leikinn heilt yfir vel og fær hann því props fyrir það og ætti í raun skilið 9. Línuvörðurinn flaggar hins vegar rangstöðu þegar að Magnamenn skora mark númer tvö og eru menn ekki par sammála um hvort það hafi verið rétt eða ekki. Verður áhugavert að skoða það aftur.



