Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Evrópudeild UEFA - karlar - Evrópukeppni
Kópavogsvöllur
Skýjað en logn og 13 gráður
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
Vaduz
Vaduz
Dómari: Nikola Popov
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Blikarnir í fínum málum fyrir seinni leikinn eftir markalaust jafntefli

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið spiluðu mjög taktískan varnarleik og það komu nánast engin færi í leikinn. Þetta var alvöru 0-0 leikur, gerðist ekkert.

Bestu leikmenn

1. Elfar Freyr Helgason

Elfar átti fantagóðan leik í vörninni, fór ekkert í gegnum þá og vann nokkrar mikilvægar tæklingar þegar Vaduz voru komnir í fínar stöður. Hefði getað skorað þegar hann fékk hörkufæri en hitti boltann illa.

2. Andri Rafn Yeoman

Andri var að spila sinn 322. leik fyrir Blika og er orðinn leikjahæsti leikmaður þeirra frá upphafi. Andri spilaði eins og oft áður vel í leiknum og lokaði svæðunum fyrir framan vörnina vel.

Atvikið

Skallinn frá Gasser. Gasser fékk frábæra fyrirgjöf inná teig en skalli hans fór í slánna og niður á línu, hefði verið rándýrt fyrir Blikana.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar fara í útileikinn í fínni stöðu, haldi þeir markinu hreinu þar eru þeim allir vegir færir. Mikilvægt að fá ekki á sig útivallarmarkið en hefði verið mjög sterkt að fara með 1-0 forrystu út.

Vondur dagur

Thomas Mikkelsen. Mikkelsen gerði lítið í kvöld, fékk ekki úr miklu að moða en þegar hann fékk boltann gerðist lítið, viljum sjá hann beittari.

Dómarinn - 6

Enginn stór dómur sem hann þurfti að taka á en dæmdi oft undarlegar aukaspyrnur í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.