Fotbolti.net
Arnór Heiðar Benónýsson
Arnór Heiðar Benónýsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Varmárvöllur - gervigras
Afturelding
Afturelding
1 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 145' Rafael Alexandre Romao Victor (víti)Andri Freyr Jónasson 86'1 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Fjörugt jafntefli í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið hefðu getað skorað meira og því er hægt að segja að markvarsla hafi ráðið því að þessi leikur endaði með jafntefli, Arnar Darri átti frábæran leik og Andri Þór var sömuleiðis mjög góður í dag.

Bestu leikmenn

1. Jason Daði Svanþórsson

Var með áætlunarferðir upp hægri kantinn í dag og lék varnarmenn Þróttara upp úr skónum marg oft. Frábær frammistaða hjá kantmanninum unga.

2. Arnar Darri Pétursson

Arnar Darri átti margar frábærar vörslur í kvöld. Ef ekki hefði verið fyrir hann hefði þessi leikur alveg klárlega tapast. Mjög góð frammistaða.

Atvikið

Jöfnunarmark Aftureldingar. Afturelding fékk gríðarlegt magn af færum í þessum leik og það hlýtur að hafa verið mikill léttir fyrir þá þegar boltinn fór loksins inn undir lok leiks.

Hvað þýða úrslitin?

Þau breyta litlu þegar það kemur að töflunni en bæði lið eru í neðri helmingi deildarinnar og Afturelding er í fallsæti á markatölu.

Vondur dagur

Árni Þór Jakobsson fær þennan vafasama titil, réði engan vegin við Jason Daða og leit ekki vel út þegar Jason brunaði framhjá honum trekk í trekk.

Dómarinn - 9

Flott frammistaða hjá dómarateyminu, dómarinn hélt góðri línu og allar stórar ákvarðanir voru réttar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.