Fotbolti.net
Fótbolti.net
Fótbolti.net
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Molde Stadion
Molde
Molde
7 - 1
KR
KR
Leke James 6'1 - 0Fredrik Aursnes 29'2 - 0 Leke James 31'3 - 0 Leke James 41'4 - 0Vegard Forren 64'5 - 0Etzaz Hussain 67'6 - 06 - 172' Tobias Bendix ThomsenOhi Omoijuanfo 93'7 - 1
Dómari: Aleksandrs Golubevs (Lettland)
Leik lokið!
Ofboðslega vont.
Molde
93. mín
MAAAARK!

Ohi Omoijuanfo

Slapp einn í gegn og skoraði.
KR
86. mín
InnBjörgvin Stefánsson
ÚtKennie Knak Chopart
Molde
83. mín
InnMattias Moström
ÚtMagnus Wolff Eikrem
KR
78. mín
InnÆgir Jarl Jónasson
ÚtArnþór Ingi Kristinsson
Molde
75. mín
InnErling Knudtzon
Út Leke James
KR
72. mín
MAAAARK!

Tobias Bendix Thomsen

Frábært skallamark eftir fyrirgjöf frá Kennie.
Molde
67. mín
MAAAARK!

Etzaz Hussain

Þessi frammistaða KR er hörmuleg.
Molde
64. mín
MAAAARK!

Vegard Forren

Skorar af stuttu færi eftir horn. Niðurlægingin heldur áfram.
60. mín
KR-ingar heppnir að lenda ekki 5-0 undir. Tvö stangarskot í sömu sókn.
55. mín
Róleg byrjun á seinni hálfleik. Ákafinn í Molde minnkað enda með öll spil á hendi.
KR
46. mín
InnGunnar Þór Gunnarsson
ÚtFinnur Tómas Pálmason
Erfiður dagur fyrir Finn, þennan efnilega leikmann. Seinni hálfleikur er hafinn.
45. mín
Þetta flaut mátti koma miklu fyrr. Þessi fyrri hálfleikur er blaut tuska í andlitið á íslenskum fótbolta.
44. mín
Molde nálægt því að skora fimmta markið. Skot rétt framhjá.
Molde
41. mín
MAAAARK!

Leke James

Topplið Pepsi Max er leitt til slátrunar. Þvílík niðurlæging. Frábær spilamennska Molde og KR á engin svör. Nígeríumaðurinn Leke James kominn með þrennu í fyrri hálfleik.
39. mín
Viðvörunarbjöllur óma fyrir íslenskan fótbolta.
35. mín
Molde bætir við fjórða markinu... Nei dæmd rangstaða.
Molde
31. mín
MAAAARK!

Leke James

Nígeríumaðurinn fær boltann á fjærstönginni eftir horn og skorar. Þetta er hræðilegt.
Molde
29. mín
MAAAARK!

Fredrik Aursnes

Eftir sláarskot dettur boltinn á Aursnes sem á ekki í vandræðum með að koma knettinun í netið.
26. mín
KR-ingar aðgangsharðir. Tobias með skot úr þröngu færi sem er varið. Með smá heppni væri KR búið að skora.
20. mín
KR FÉKK HÖRKUFÆRI!!! Tobias Thomsen í teignum með skot en í varnarmann! Þarna var möguleiki á jöfnunarmarki!
17. mín
Molde með hættulega fyrirgjöf en Beitir les þetta vel.
12. mín
Molde á skalla á mark. Beitir ver.
11. mín
Molde með góða sókn og vinnur hornspyrnu.
Molde
6. mín
MAAAARK!

Leke James

Molde splundrar vörn KR-inga algjörlega. Vel spilað. James skorar í annarri tilraun. Skúli Jón náði að komast fyrir fyrra skotið.
5. mín
Pálmi Rafn með skot sem breytir um stefnu af varnarmanni en er kraftlítið og endar í fangi markvarðar Molde.
4. mín
HÖRKUSKOT! Óskar Örn með hættulegt skot fyrir utan teig! Markvörður Molde ver, heldur ekki boltanum og Tobias tekur frákastið en aftur er varið! Öflug byrjun KR.
1. mín
Leikur hafinn. KR hóf leik.
Fyrir leik
Þetta er fyrri leikur liðanna en sigurliðið úr þessu einvígi mætir sigurvegaranum í viðureign Cukaricki frá Serbíu og Banants frá Armeníu í næstu umferð.
Fyrir leik
Byrjunarlið KR er mætt inn. Ein breyting á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn ÍBV í Pepsi Max-deildinni. Skúli Jón Friðgeirsson kemur inn fyrir Atla Sigurjónsson. Skúli hefur verið að koma inn eftir höfuðmeiðsli en fær nú byrjunarliðsleik.
Fyrir leik
Það eru allir klárir hjá KR í þennan leik nema Alex Freyr Hilmarsson og Finnur Orri Mageirsson. Alex Freyr spilar ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla en það styttist í endurkomu Finns Orra. Björgvin Stefánsson verður í leikmannahópi KR í fyrsta sinn í langan tíma en hann hefur verið í banni eins og frægt er.
Fyrir leik
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR:
Molde á kannski með öllu réttu að fara í gegnum þetta, en við höfum fulla trú á því sem við erum að gera og við höfum fulla trú á því sem leikmennirnir hafa verið að sýna í síðustu leikjum. Við erum að spila vel, við erum að verjast vel og við þurfum að hafa trú á verkefninu. Það er alltaf stærra og meira verkefni að vera í Evrópukeppni gegn liðum sem eru hærra skrifuð en íslensku liðin. Við þurfum að eiga toppleik. Við þurfum að nýta sjálfstraustið sem við erum með og nýta okkur þau góðu úrslit sem við höfum verið að ná í undanförnum leikjum.
Fyrir leik
KR, topplið Pepsi Max-deildarinnar, mætir Molde, toppliði norsku úrvalsdeildarinnar, í forkeppni Evrópudeildarinnar í dag.

Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport og er þessi textalýsing unnin úr þeirri útsendingu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.