SKÝRSLAN: KR er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna
Hvað réði úrslitum?
KR virtist vilja þetta meira að lokum. Þær kláruðu sín færi og vörðust frábærlega. Sóknarleikur Þór/KA var á köflum mjög slakur og þær sköpuðu sér aldrei nein almennileg færi!
Bestu leikmenn
1. Gloria Douglas (KR)
Gloria var geggjuð í dag og sú hefur komið sterk inn í þetta KR lið! Hún sprengdi upp leikinn trekk í trekk og sýndi alvöru gæði! Hörku leikmaður
2. Ingunn Haraldsdóttir (KR)
Var eins og klettur í vörninni. Hún var allstaðar þegar á þurfti að halda. Ein af ástæðum þess að Þór/KA náði aldrei neinum alvöru sóknarleik í gang.
Atvikið
Vítaspyrna sem ekki var dæmd undir lok fyrri hálfleiks. Mayor vildi fá vítaspyrnu sem virkaði eins og það væri pjúra vítaspyrna en Arnar dæmdi ekki. Það hefði getað breytt framvindu þessa leiks.
Hvað þýða úrslitin?
KR er komið í úrslitaleikinn og mætir þar Selfossi!
Vondur dagur
Sóknarleikur Þór/KA var ekki upp á marga fiska og miða við gæðin sem Sandra Mayor býr yfir þá á hún að geta gert mun betur á síðasta þriðjung vallarins en hún sýndi
Dómarinn - 7
Fyrir utan því að sleppa vítinu var hann flottur.



