Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Varmárvöllur - gervigras
Afturelding
Afturelding
1 - 2
Þór
Þór
0 - 143' Bjarki Þór Viðarsson Andri Freyr Jónasson 71'1 - 11 - 290' Dino Gavric
Dómari: Joakim Östling
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Þórsarar með sigur í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Þetta var virkilega lokaður leikur og lítið um opin færi. Þórsarar náðu inn marki á lokamínútum leiksins og það réði úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Dino Gavric

Virkilega flottur leikur hjá þessum stæðilega varnarmanni. Lítið um færi hjá Aftureldingu og Gavric var vel á tánum. Skoraði svo gott mark í lokin sem tryggði þrjú stig.

2. Loic Ondo

Ondo var öflugur í loftinu í dag og gekk illa hjá sóknarmönnum Þórs að skapa færi í leiknum. Gat lítið gert í mörkum Þórs og heilt yfir voru Afturelding þéttir varnarlega. Fyrirliðinn var stór ástæða þess.

Atvikið

Sigurmark Þórs á 90 mín er stærsta atvik leiksins og tryggði Þór þrjú dýrmæt stig.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar halda sér í toppbáráttu deildarinnar en Afturelding þarf nauðsynlega á stigum að halda í næstu leikjum.

Vondur dagur

Jason Daði er án efa einn efnilegasti leikmaður deildarinnar en hann þarf að vera aðeins skilvirkari í sínum leik. Var oft að missa boltann í dag og náði ekki að binda endahnút á sóknaraðgerðir sínar. Þegar svona hæfileikar eru til staðar þá vill maður sjá meira!

Dómarinn - 9

Hinn sænski Joakim var með allt á hreinu í dag. Mér fannst hann dæma leikinn virkilega vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.