Fotbolti.net
Ingimar Bjarni Sverrisson
Ingimar Bjarni Sverrisson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ásvellir
Bongó fyrir utan smá gust
Haukar
Haukar
1 - 5
Fjölnir
Fjölnir
0 - 13' Guðmundur Karl Guðmundsson 0 - 26' Arnór Breki Ásþórsson Arnar Aðalgeirsson 11'1 - 21 - 313' Ingibergur Kort Sigurðsson 1 - 450' Ingibergur Kort Sigurðsson 1 - 565' Þorsteinn Örn Bernharðsson (sjm)
Dómari: Valdimar Pálsson
Áhorfendur: 200

SKÝRSLAN: Fjögurra marka korter á Ásvöllum!

Hvað réði úrslitum?

Hrikalegur klafagangur í vörn Hauka. Af fimm mörkum Fjölnis koma fjögur eftir að varnarmenn Hauka gera klúðursleg mistök sem er bara ekki hægt gegn jafn góðu liði og Fjölnir er. Gestirnir gengu á lagið og unnu verðskuldað.

Bestu leikmenn

1. Albert Brynjar

Hann skoraði að vísu ekki en allavega tvö af mörkum Fjölnis urðu til útaf einstaklings framtaki hans, ef miðið hefði verið aðeins betur stillt hefði hann gengið út með þrennu í stað tveggja stoðsendinga.

2. Ingibergur Kort

Tvö mörk sem bæði komu úr því að vera réttur maður á réttum stað. Hirti í bæði skipti upp fráköst í teignum og slúttaði vel, var þess fyrir utan sí ógnandi og skapaði aragrúa færa fyrir félaga sína.

Atvikið

Fjórða markið í byrjun seinni hálfleiks. Haukarnir voru búnir að vera mjög flottir seinni hluta fyrri hálfleiks og maður velti fyrir hvort þeir væru að fara að koma til baka, en Ingibergur gerði út um þá drauma hjá Haukum.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir eru komnir í mjög vænlega stöðu á toppi deildarinnar, auka forskot sitt á Gróttu um tvö stig og halda þriggja forystu á Þór, með lang lang bestu markatöluna. Haukar eru hins vegar komnir í bullandi fallbaráttu.

Vondur dagur

Margir Haukarar sem ættu skilið að vera hérna en ætla að útnefna Aron Frey. Þrátt fyrir að vera virkilega sprækur fram á við klikkuðu margar sendingar hjá honum og brenndi af dauðafærum í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 4

Hélt ekki nógu skýrri línu, klikkaði á litlum atvikum og Haukar áttu að fá alla vega eina, ef ekki tvær vítaspyrnur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.