SKÝRSLAN: Fyrsta tap Magna á Grenivíkurvelli í sumar
Hvað réði úrslitum?
Það var gæðamunur á þessum tveimur liðum í dag sem sást vel á vellinum. Magni náði sér aldrei á strik á meðan gestirnir voru öflugir og sýndu á köflum frábæra spilamennsku.
Bestu leikmenn
1. Hjalti Sigurðsson
Leiknisliðið eins og það leggur sig var frábært í dag. Hjalti átti stór góðan leik í bakverðinum. Brunaði upp og niður kantinn og var öflugur á báðum vígstöðum. Átti hættulegar fyrirgjafir og ein af þeim endaði sem stoðsending.
2. Stefán Árni Geirsson
Margir sem koma til greina en ég set Stefán Árna hér. Var mjög öflugur á miðjunni fyrir Leiknir og lét Magnamenn hafa mikið fyrir sér.
Atvikið
Mark númer tvö slóg Magna alveg út af laginu en þeir komu öflugir inn í seinni hálfleikinn. Markið slökkti á heimamönnum og gestirnir bættu bara í eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir fer upp í 21 stig í 5. sæti og ná að tengja saman tvo sigra. Magni tapar sínum fyrsta leik á Grenivíkurvelli í sumar og mistekst að koma sér upp úr fallsætinu. Liðið er áfram í 12 sæti með 10 stig.
Vondur dagur
Magna liðið í heild sinni kom frekar illa stemmdir til leiks og náðu einhvern veginn aldrei takti í leiknum. Vondur dagur hjá liðsheildinni sem er einmitt það sem Magni þarf að stóla á. Það líka aldrei skemmtilegt að skora sjálfsmark og það var hlutskipti fyrirliða Magna í dag Sveins Óla.
Dómarinn - 4
Kristinn og hans aðstoðamenn voru útum allt í dag. Það var enginn lína í leiknum og hann virkaði óöruggur. Oft mjög augljós brot sem hann lét vera að dæma á. Stundum var hann kominn með flautuna upp í munninn en hætti þá skyndilega við. Ekki hans dagur.



