SKÝRSLAN: Óttarslegnir Eyjamenn
Hvað réði úrslitum?
Mikill gæðamunur á liðunum og með réttu hefði sigur Víkinga átt að vera mun stærri. Þeir fóru illa með nokkrar góðar sóknir en það kom ekki að sök í dag.
Bestu leikmenn
1. Óttar Magnús Karlsson - Víkingur
Þvílíkur happafengur fyrir Víkinga að fá Óttar heim. Er með allt sem liðinu vantaði fram á við. Gæði, markaskorun og nýtur sín gríðarlega vel í þeirri hugmyndafræði sem Arnar Gunnlaugs hefur mótað.
2. Kári Árnason - Víkingur
Arnar ákvað að reyna að fá inn meiri stjórnun og jafnvægi á miðjuna með því að setja Kára þangað. Svínvirkaði.
Atvikið
Aukaspyrnan frá Óttari. Skoraði fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu. Frábær skottækni og konfektmark.
Hvað þýða úrslitin?
"Við færumst nær Evrópusæti" sagði Arnar Gunnlaugsson kokhraustur eftir leik. Sigurinn var gríðarlega dýrmætur fyrir Víkinga í botnbaráttunni en Arnar hugsar stærra en það!
Vondur dagur
Leikmenn ÍBV hafa sjálfir lagt árar í bát. Algjört sjálfstrausts- og viljaleysi skín af liðinu. Það var eins og menn væru mættir þarna bara af skyldurækninni einni. Heppnir að tapa ekki stærra og ég er ekki viss um að liðið fái fleiri stig í sumar.
Dómarinn - 5,5
Verulega auðveldur leikur að dæma en samt var Pétur ekkert sérstakur. Sem betur fer fyrir hann fékk hann ekki erfiðari leik að dæma því hann var ekki á deginum sínum og ótrúlegt að fleiri spjöld fóru ekki á loft.



